Aðventumolar Árna í Árdal: Súkkulaðitrufflur Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 12. desember 2019 09:15 Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum. Vísir/Árni
Á hverjum degi fram að jólum birtum við uppskrift frá Aðventumolum Árna í Árdal sem sýndir eru á Stöð 2 í desember. Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum. Með einskærri lífsgleði og eldmóð hefur Árni sérstakan hæfileika til að hrífa fólk með sér. Hér nær hann svo sannarlega að veita áhorfendum innblástur og töfrar fram bragðgóða og spennandi rétti alla aðventuna. Súkkulaðitrufflur er uppskrift dagsins. Aðventumolann má sjá hér í spilaranum að neðan en uppskrift og leiðbeiningar er að finna neðar í fréttinni. Aðventumolar Árna í Árdal eru á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 19.10 alla daga fram að jólum nema á föstudögum eru þeir sýndir beint á eftir Allir geta dansað. Klippa: Súkkulaðitrufflur - Aðventumolar Árna í Árdal Innihald Trufflugrunnur 300 millilítrar rjómi Bragðauki (sjá fyrir neðan) 400 grömm dökkt súkkulaði, brytjað niður 100 grömm mjög mjúkt smjör 200 grömm dökkt kakóduft Bragðaukar 4 ástaraldin, innihaldið skafið úr 20 grömm Earl Grey te Börkur af einni sítrónu og 5 timjangreinar Leiðbeiningar Hitið rjóma í litlum potti og takið af hitanum þegar hann nær suðumarki . Bætið bragðaukanum út í heitan rjómann, setjið lok á pottinn og látið standa í um 20 mínútur. Setjið súkkulaðið í hitaþolna skál og hellið rjómanum yfir súkkulaðið í gegnum sigti. Þrýstið á bragðgjafann í sigtinu með sleikju til að ná öllu bragði úr honum. Byrjið að hræra í miðju skálarinnar með sleikju þar til súkkulaðið þar er byrjar að þykkna. Haldið áfram að hræra og færið ykkur alltaf utar í skálina þar til allt súkkulaðið er orðið skínandi fallegt. Ef allt súkkulaðið nær ekki að bráðna er hægt að setja skálina rétt snöggvast yfir heitt vatnsbað. Setjið nú súkkulaðið til hliðar og látið það ná stofuhita. Bætið smjöri við í litlum skömmtum og hrærið þar til engir smjörbitar eru sjáanlegir. Setjið trufflugrunninn í sprautupoka og myndið 2 sentímetra dropa á bökunarpappírsklæddri bökunarplötu. Setið trufflurnar inn í ísskáp og kælið í 1 klukkustund eða þar til þær eru orðnar nokkuð harðar. Setjið kakóduftið á grunnan disk. Veltið trufflunum í kakóduftinu svo þær festist síður við hendurnar. Rúllið þeim snögglega í lófunum í nettar kúlur. Setjið trufflurnar aftur á bökunarplötuna og inn í kæli í um 30 mínútur. Veltið nú trufflunum aftur í kakódufti og notið tvo gaffla, annars koma fingraför á trufflurnar, til að færa þær yfir á disk til að bera fram. Ef ekki á að bera trufflurnar strax fram er best að sleppa því að velta þeim úr kakóduftinu og setja þær í loftþétt ílát. Trufflurnar geymast í um viku í kæli. Þegar þær eru bornar fram er þeim velt upp úr kakódufti beint úr kælinum, settar á disk og látnar ná stofuhita, sem getur tekið einn til tvo tíma.
Aðventumolar Árna í Árdal Eftirréttir Jól Jólamatur Smákökur Trufflur Uppskriftir Tengdar fréttir Aðventumolar Árna í Árdal: Lamba Wellington Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum. 9. desember 2019 10:00 Aðventumolar Árna í Árdal: Jólakokteillinn Tommi og Jenni Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum. 11. desember 2019 09:45 Aðventumolar Árna í Árdal: Jólaskjóður Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum. 10. desember 2019 09:00 Aðventumolar Árna í Árdal: Skákkökur Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum. 10. desember 2019 13:00 Mest lesið Munnvatnið skiptir öllu máli Lífið Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Lífið Myndband við Þjóðhátíðarlagið frumsýnt á Vísi Lífið samstarf Fróun í beinni útsendingu og uppruni FM-hnakkans Lífið Rúm ungbarna eigi að vera ljót og leiðinleg Lífið Röddin með stóru Erri og greini lögð á hilluna Lífið Ráðin nýr forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri Menning Heitur Teitur selur Lífið Iðnaðarmaður ársins hlustar á IceGuys til að koma sér í stuð Lífið samstarf „Er ég ekki nóg nema ég sé í gervi einhvers annars?“ Menning
Aðventumolar Árna í Árdal: Lamba Wellington Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum. 9. desember 2019 10:00
Aðventumolar Árna í Árdal: Jólakokteillinn Tommi og Jenni Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum. 11. desember 2019 09:45
Aðventumolar Árna í Árdal: Jólaskjóður Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum. 10. desember 2019 09:00
Aðventumolar Árna í Árdal: Skákkökur Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum. 10. desember 2019 13:00