Súperstjörnufyrirtæki bað um Gylfa og Aron Benedikt Bóas skrifar 8. janúar 2018 11:00 Meðal stórstjarna sem eru á samningi hjá fyrirtækinu er tónlistarfólkið Marc Anthony og Shakira. vísir/getty/epa „
Við föngum ekki stundina, við búum hana til,“ segir í kynningu um viðburðafyrirtækið CMN sem sér um landsleik Íslands og Perú sem fram fer á Red Bull vellinum í Harrison, New Jersey þann 27. mars. CMN er eitt stærsta viðburðafyrirtæki heims, stofnað af Henry Cárdenas árið 2002. Það hefur alltaf haft það að markmiði að koma með það besta frá spænskumælandi heimi til Bandaríkjanna. Íþróttadeildin hefur séð um skipulagningu á leikjum argentínska landsliðsins í Bandaríkjunum þar sem flestir af bestu knattspyrnumönnum heims leika, meðal annar Lionel Messi. Yfir 100 manns vinna hjá fyrirtækinu en það er með skrifstofur í Chicago og Miami. Skrifstofan sér um tónleikahald og íþróttaviðburði og kappkostar að bjóða það besta frá spænskumælandi heiminum til Bandaríkjamanna. Meðal stórstjarna sem eru á samningi hjá fyrirtækinu er tónlistarfólkið Marc Anthony, Shakira, Juan Luis Guerra, Chayanne, Maná, Nicky Jam og Daddy Yankee sem rappaði sig inn í hjörtu heimsins í laginu Despacito. Ferðin mun ekki kosta KSÍ mikla peninga ef nokkra samkvæmt Ómari Smárasyni, markaðsstjóra KSÍ. „Þetta er ekkert nýtt að viðburðafyrirtæki sjái um vináttuleiki, sérstaklega ef þeir fara fram í þriðja landinu eins og er í þessu tilviki. Leikurinn er ekki spilaður í Perú eða á Íslandi heldur í Bandaríkjunum. Landslagið er orðið gjörbreytt sem kemur með þeim árangri sem við höfum verið að ná. Það vilja fleiri lið spila við okkur og við erum orðinn stærri biti en við vorum,“ segir hann. Karlalandsliðið fór í boðsferð til Katar seint á síðasta ári þar sem liðið spilaði tvo leiki og naut lífsins. Sú ferð, sem og ferðin til Indónesíu, kostar KSÍ varla nema þrjár krónur og tíu aura. „Það er jákvætt fyrir KSÍ og okkur sem fótboltaland að við erum orðin stærri biti. Ég veit ekki alveg hvernig kostnaðinum er skipt en við erum ekki að bera mikinn kostnað af þessu ef einhvern,“ segir Ómar.
Mest lesið Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Tónlist Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Lífið Hrútar orðnir að kóreskum kálfum Bíó og sjónvarp Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Fleiri fréttir Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Sjá meira