Matur

Einfalt með Evu: Focaccia, súkkulaðimús og Risotto með kóngasveppum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eva þekkir einfalda rétti betur en flestir.
Eva þekkir einfalda rétti betur en flestir.

Einfalt með Evu fór í loftið á Stöð 2 á dögunum en í þáttunum matreiðir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir frábæra en á sama tíma einfalda rétti. 

Uppskriftirnar verða ávallt aðgengilegar hér á Vísi. Hér að neðan má sjá uppskriftir úr þætti kvöldsins.



Focaccia með hvítlauk og rósmarín.

Focaccia með hvítlauk og rósmarín

Deig: 

600 g hveiti 1  msk hunang ½ tsk. Salt 12 g þurrger (1 bréf)

1 dl ólífuolía

Ofan á:

1 dl ólífuolía

2 hvítlauksrif

1 msk smátt saxað rósmarín

10 kirsuberjatómatar

Aðferð: Blandið volgu vatni, þurrgeri og hunangi saman í skál. Hrærið vel í blöndunni og látið standa í nokkrar mínútur eða þar til það byrjar að freyða í skálinni.

Blandið öllum hráefnum saman í hrærivélaskál og hnoðið deigið vel eða þar til deigið er slétt og sprungulaust. Þá er deigið látið hefast undir viskastykki þar til það hefur tvöfaldast að stærð eða í um það bil 35 – 40 mínútur. Því næst er ofnskúffa smurð með ólífuolíu, deigið sett í skúffuna og því þrýst jafnt út í alla kanta.

Saxið hvítlauk, rósmarín og blandið við ólífuolíu. Smyrjið deigið vel með hvítlauksolíunni, sáldrið sjávarsalti yfir og stingið nokkrum kirsuberjatómötum í deigið. Bakið brauðið við 200 °C í 15-20 mínútur eða þar til brauðið er orðið gullinbrúnt.

Súkkulaðimús af dýrari gerðinni.

Himnesk súkkulaðimús - Fyrir fjóra

30 g smjör

220 g súkkulaði

260 ml rjómi

3 stk egg

2 msk sykur

Sjávarsalt á hnífsoddi

Fersk hindber



Aðferð:

Bræðið smjör og súkkulaði við vægan hita í potti. Hellið súkkulaðiblöndunni í skál og blandið þremur eggjarauðum saman við. Kælið blönduna.

Þeytið rjóma og bætið að því loknu súkkulaðiblöndunni saman við í þremur hlutum. Leggið blönduna. Stífþeytið eggjahvíturnar og bætið sykrinum smátt og smátt saman við.

Hrærið eggjahvítublönduna mjög varlega saman við súkkulaðiblönduna með sleikju, hrærið vanillu út í að lokum. Skiptið súkkulaðimúsinni niður í  falleg glös eða skálar og geymið í kælií lágmark 3 klukkustundir áður en þið berið hana fram.

Ómótstæðilegt Risotto að hætti Evu Laufeyjar.

Risotto með kóngasveppum

  • 1 msk ólífuolía + klípa smjör
  • 1 laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • 4 dl arborio hrísgrjón
  • 250 g smátt skorinn aspas
  • 80 g kóngasveppir
  • 10 flúðasveppir
  • 8 dl kjúklingasoð
  • 2 dl hvítvín
  • Salt og pipar
  • 60-80 g parmesan ostur
  • 2 msk smjör



    Aðferð:
  1. Leggið þurrkaða kóngasveppi í bleyti samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.
  2. Hitið ólífuolíu í potti, steikið lauk og hvítlauk í 2-3 mínútur. Bætið smátt söxuðum aspas og smátt söxuðum sveppum út í pottinn og steikið, bætið því næst arborio grjónum út í og hrærið stöðugt.
  3. Hellið hvítvíninu saman við og leyfið því að sjóða niður, bætið næst kjúklingasoðinu smám saman við og hrærið mjög vel á milli.
  4. Bætið parmesan ostinum og smjörinu saman við í lokin og kryddið til með salti og pipar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×