Haustspá Siggu Kling – Vogin: Það er í eðli þínu að krefjast breytinga 7. september 2018 09:00
Elsku hjartans Vogin mín, ég veit þú horfir bjartsýnum augum á lífið og ert duglegri en flestir, hættu að pirra þig yfir að ekki allir geti fylgt þér eftir, svoleiðis er það bara. Þú hefur svo magnaðar hugsjónir, en á sama tíma efastu um sjálfa þig, taktu bara eitt skref í einu og það ótrúlega mun gerast. Það er í eðli þínu að krefjast breytinga, þú hefur ástríðu fyrir því, ert eins og rafmagn þess vegna er svo mikilvægt fyrir þig að stinga þér í samband og láta ekkert kjaftæði á þig fá. Venus stjórnar orkunni og er ríkjandi og þess vegna ertu svo ástríðufull, vilt líta vel út, hafa mikið úthald og vera helst eins og Madonna eða Tina Turner, eða annað átrúnaðargoð að þessu leyti, gefur ekkert eftir en þarft aðeins að staldra við og sjá hvað uppskeran er mikil og þú hefur allt í hendi þér og fulla stjórn og núna þarftu bara að opna lófann og sjá hvað þú hefur byggt upp. Það er innbyggð í þér viss sjálfseyðingarhvöt sem fylgir oft bardagamönnum, því enginn er eins viðkvæmur og þú í raun og veru. Næstu þrír mánuðir gefa þér mörg tækifæri til að njóta augnabliksins og sjá þú ert við fulla stjórn á eigin lífi svo þú ert að fá allt sem þú þarft, meira getur enginn maður beðið um. Í ástinni og lífinu þarftu ákveðið rými og er mikilvægt fyrir þig að skoða að velja þér lífsförunaut sem er ekki líkur þér, heldur hefur sinn sjálfstæða karakter sem þú getur verið stolt af. Langtímasambönd henta þér best svo ef þú ert á lausu (sem engin Vog er nokkurn tímannJ) þá þarftu að finna einhvern sem heldur þér á tánum og lætur þig finna frið. Þú ert að fara í svo spennandi tímabil því þín áramót eru að koma, og áramótin þín eru eins og ég hef oft sagt áður afmælið þitt, skoðaðu vel hvaða tilfinningar þú hefur núna því það eru að streyma inn til þín skilaboð og ef þú ætlar að taka sterka ákvörðun í lífi þínu og þá er ég að meina ákvörðun sem skiptir miklu máli þá er það núna, og ekkert já eða nei við því sem lífið er að bjóða þér, ekkert kannski eða ég ætla að ákveða seinna. Þetta er sterkur tími sem gefur þér kraft, óttaleysi og seiglu.Frægir í Voginni: Kári Árnason landsliðsmaður, Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur, Hjalti flugþjónn, Ingi í Sign, Jón Axel Ólafsson athafnamaður, Matt Damon leikari, Íris Berg, fatahönnuðurinn minn, Mary Poppins, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og sjónvarpskona, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Lilja Dögg Alfreðsdóttir alþingiskona, Ósk Gunnarsdóttir útvarpskona, María Einarsdóttir ritari stjörnuspánnar, Arnþrúður Karlsdóttir útvarp Saga, Skúli Mogensen, Hulda Hólmkelsdóttir fréttakona, Walter Matthau, Olavia Newton John, Ragga Gísla, Steinn Steinarr, Margret Thatcher, Ragnheiður Elín Árnadóttir, hinn mikli meistari.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Fagnaði 35 árum í sólinni Lífið Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Lífið Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Lífið Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Lífið „Allir vonuðu að þetta yrði stelpa“ Lífið Fleiri fréttir „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Fagnaði 35 árum í sólinni Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn „Allir vonuðu að þetta yrði stelpa“ Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Selur slapp úr hvalskjafti Komo keppir á stærstu götubitakeppni í heimi Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina „Það spurði þig enginn“ Mætt aftur til vinnu Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar Ljúffengar vöfflur í nestisboxið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann Leyfir börnunum að sofa uppi í rúmi Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu Klippt út af myndinni Ein litríkasta íbúð landsins til sölu Gæsun Maríu Thelmu tók óvænta U-beygju Gáfu dótturinni þrjú nöfn Stjörnulífið: Brúðkaupsafmæli á hlaupum og lokatónleikar Laufeyjar Var Díana prinsessa myrt? Sjá meira