Sló í gegn í kápu eftir Stellu McCartney Ritstjórn skrifar 19. janúar 2018 12:00 Glamour/Getty
Tilvonandi brúðhjónin Harry Bretaprins og leikkonan Meghan Markle halda áfram að heilla bresku þjóðina í opinberum heimsóknum sínum en í vikunni heimsóttu þau skóla í Cardiff í Wales. Þeim var fagnað eins og rokkstjörnum og greinilega í miklu uppáhaldi hjá fólki. Markle var klædd í svarta kápu með skemmtilegri slaufu um mittið frá Stellu McCartney, sem kostar tæpar 200 þúsund íslenskar krónur. Ef marka má vinsældir hennar þá mun kápan seljast upp ansi fljótt. Þá var hún í köflóttum topp með berar axlir og með flöskugræna leðurtösku frá merkinu DeMellier, sem kostar um 45 þúsund íslenskar krónur. Það verður eitthvað að fylgjast með brúðkaupundirbúningnum en það fer fram í vor - mun Hollywood mæta og verður það sýnt í beinni? Tíminn leiðir það í ljós og við fylgjumst með. Markle virðist allavega vera mjög sátt við þetta nýja hlutverk.
Mest lesið Kylie litar sig aftur dökkhærða Glamour LVMH reyna að selja Donna Karan Glamour Selena Gomez nýtt andlit Louis Vuitton Glamour Vogue tekur myndir á Seyðisfirði Glamour Smekkbuxurnar mættar aftur Glamour Kendall Jenner fyrir Calvin Klein Glamour Fangaði augnblikin á Instagram fyrir Vogue Glamour Theresa May mun sitja fyrir í Vogue Glamour Klæðum okkur upp á kjördag Glamour Trendin af götunum Glamour