Fjórða sætið niðurstaðan hjá unglingaliðinu Ástrós Ýr Eggertsdóttir í Lissabon skrifar 19. október 2018 17:00 Liðið náði ekki að bæta árangur sinn frá því í undankeppninni mynd/steinunn anna svansdóttir Blandað lið Íslands í unglingaflokki lenti í fjórða sæti í úrslitum á EM í hópfimleikum í dag. Liðið var fyrst út á gólfið í gólfæfingar. Þær heppnuðust þokkalega en þó var einkunnin lægri en í undankeppninni. Æfingar á dýnu gengu frábærlega og negldi liðið nær allar lendingar sínar. Það gekk hins vegar ekki eins vel á trampólíni þar sem komu nokkur föll. Baráttan um gullið var á milli Svía og Dana en svo fór að Danir höfðu betur. Norðmenn tóku bronsið. Upphaflega var Ísland í 4.-5. sæti, jafnt Bretum að stigum. Bretar kærðu hins vegar danseinkunn sína og í stað þess að hækka einkunnina þá lækkaði hún og Íslendingar fá fjórða sætið.Einkunnir Íslands: Gólf 15,900 Dýna 16,100 Trampólín 15,000Uppfært klukkan 17:52: Fréttin var uppfærð eftir kæru Breta.
Blandað lið Íslands í unglingaflokki lenti í fjórða sæti í úrslitum á EM í hópfimleikum í dag. Liðið var fyrst út á gólfið í gólfæfingar. Þær heppnuðust þokkalega en þó var einkunnin lægri en í undankeppninni. Æfingar á dýnu gengu frábærlega og negldi liðið nær allar lendingar sínar. Það gekk hins vegar ekki eins vel á trampólíni þar sem komu nokkur föll. Baráttan um gullið var á milli Svía og Dana en svo fór að Danir höfðu betur. Norðmenn tóku bronsið. Upphaflega var Ísland í 4.-5. sæti, jafnt Bretum að stigum. Bretar kærðu hins vegar danseinkunn sína og í stað þess að hækka einkunnina þá lækkaði hún og Íslendingar fá fjórða sætið.Einkunnir Íslands: Gólf 15,900 Dýna 16,100 Trampólín 15,000Uppfært klukkan 17:52: Fréttin var uppfærð eftir kæru Breta.
Fimleikar Mest lesið Sjáðu fljótasta mark í sögu EM og endurkomu Ítalíu Fótbolti Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Enski boltinn Bjarni lætur af störfum hjá KR Fótbolti Hundraðasta mark Söndru Maríu kom í Garðabænum Íslenski boltinn Ítalía kom til baka gegn Albaníu Fótbolti Spánverjar skoruðu mörkin Fótbolti Kevin Campbell látinn eftir stutt veikindi Fótbolti Yngstur í sögunni: Fagnaði áfanganum með stoðsendingu Fótbolti Matija Sarkic látinn aðeins 26 ára gamall Fótbolti Cole Palmer skapaði óvart jarmveislu á Twitter Fótbolti Fleiri fréttir Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Sjáðu fljótasta mark í sögu EM og endurkomu Ítalíu Hundraðasta mark Söndru Maríu kom í Garðabænum Ítalía kom til baka gegn Albaníu Spánverjar skoruðu mörkin Yngstur í sögunni: Fagnaði áfanganum með stoðsendingu Uppgjör: Stjarnan – Þór/KA 1-4 | Sandra María hættir ekki að skora Spánverjar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Sjáðu mörkin: Sviss byrjar af krafti „Það er erfitt að koma hingað og sækja stig“ Uppgjör: FH varði forskotið og tók öll stigin Emilía Kiær danskur meistari með Nordsjælland Þorleifur áfram með Grindavík Öruggur sigur Sviss í fyrsta leik Brjálað stuð og blíða á pæjumótinu Cole Palmer skapaði óvart jarmveislu á Twitter Vistaskipti Ísaks til Düsseldorf staðfest formlega Kevin Campbell látinn eftir stutt veikindi Matija Sarkic látinn aðeins 26 ára gamall Åberg með eins höggs forskot Mavericks knúðu fram annan leik með krafti Hélt að hásinin hefði slitnað: „Fékk svona tilfinningu eins og einhver hefði sparkað aftan í mig“ DreamHack Summer 2024 Ratcliffe ræðst í fimmtíu milljóna punda endurbætur á Carrington æfingasvæðinu Dagskráin í dag: Tveir leikir í Bestu, úrslitaeinvígi á svellinu og opna bandaríska Spánverjar missa miðvörð í meiðsli fyrir fyrsta leik Lallana snýr aftur til Southampton Yngsti þjálfarinn stýrði stærsta opnunarsigri í sögu EM Celtics vilja sjá Horford hampa titlinum: „Þetta snýst um meira en bara mig“ Sir Alex og Mourinho sátu saman á opnunarleik EM Sjá meira