Judenfrei Óttar Guðmundsson skrifar 17. febrúar 2018 07:00 Júdea, hið forna ríki Ísraelsmanna, féll í hendur Rómverja fyrir liðlega 2100 árum. Trúarbrögð gyðinga voru bönnuð og Seifslíkneski komið fyrir í musterinu. Tíminn leið og gyðingar dreifðust út um heim. Fjölmargar þjóðir litu á þá sem vandamál og takmörkuðu réttindi þeirra á alla lund. Gyðingaþjóðin var talin bera ábyrgð dauða Krists svo að skipulagðar ofsóknir voru tíðar. Þær náðu hámarki í Þriðja ríkinu á liðinni öld enda var sagt í stefnuskrá Nasistaflokksins að gyðingar gætu einfaldlega ekki verið meðlimir í þýsku samfélagi. Nokkrum ofsóttum gyðingum tókst að flýja til Íslands en flestir voru sendir heim aftur. Skömmu fyrir stríðsbyrjun reyndu nokkrir Íslendingar að veita munaðarlausum gyðingabörnum landvist en var meinað það af Hermanni Jónassyni ráðherra. Sáttmáli gyðinga við Guð hefur fylgt þeim í öllum þrengingum. Hluti hans er umskurður sveinbarna sem fjallað er um í Fyrstu Mósebók. Hvar sem Gyðingar hafa búið er umskurður ungra drengja óaðskiljanlegur hluti af trúarathöfnum þeirra. Það er sérlega vel til fundið hjá ungri Framsóknarkonu að feta í fótspor Hermanns og losa Ísland við gyðingavandamálið. Nú á að banna umskurð sveinbarna með lögum að viðlagðri fangelsisvist. Með slíkri löggjöf sköpum við okkur algjöra sérstöðu í heiminum með því að úthýsa endanlega þessum gamla ættbálki frá Júdeu áður en hann gæti mögulega orðið vandamál hérlendis. Skilaboð okkar til umheimsins eru skýr og gamalkunn: Gyðingar geta ekki verið meðlimir í íslensku samfélagi. Okkur tekst með þessu að koma Íslandi á heimskortið sem andsemitísku ríki og losnum þannig við fjölmarga óæskilega túrista frá Ísrael og Bandaríkjunum. Enn og aftur standa Framsóknarmenn í fararbroddi og verja heiður og orðstír landsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Óttar Guðmundsson Mest lesið Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir Skoðun
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun