Mikilsverðir staðir allt í kring um Guðrúnu Helgu Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 13. janúar 2018 09:15 Hér voru það blómin hvítu sem heilluðu Guðrúnu.
Guðrún Helga Andrésdóttir sýnir vatnslita- og olíumyndir í Safnahúsi Borgarfjarðar, Bjarnarbraut 4-6, um þessar mundir, flestar þeirra málaðar á síðasta ári. Myndirnar eru margar hverjar af stöðum sem Guðrún tengist á einhvern hátt eða hefur komið á. Með það í huga nefnir hún sýninguna Staðir allt um kring. Guðrún Helga býr í Borgarnesi og á ættir að rekja í Suður-Þingeyjarsýslu og uppsveitir Borgarfjarðar. Er dóttir Þorgerðar Kolbeinsdóttur frá Stóra-Ási og Andrésar Kristjánssonar ritstjóra. Hún hefur lagt stund á myndlist um margra ára skeið og sótt sér menntun á því sviði gegnum árin. Átta bæir í Hálsasveit sem voru í Stóra-Ás kirkjusókn áður en hún var lögð niður og færð til Reykholts eru meðal myndefna á sýningunni. Kveikjan að því er setning í bókinni Engjafang eftir móðurbróður Guðrúnar, Magnús Kolbeinsson: „Frá bernsku er mér minnisstætt þegar ég horfði á kirkjufólkið koma til kirkju úr þremur höfuðáttum, framan frá Hraunsási og Húsafelli, sunnan frá Augastöðum og Giljum og utan frá Kollslæk, Sigmundarstöðum og Refsstöðum.“ Auk bæjamyndanna sýnir Guðrún Helga myndir af fjöllum og öðrum náttúrufyrirbærum í nágrenninu og fleiri stöðum. Sýningin er opin kl. 13 til 18 virka daga til 2. mars og aðgangur er ókeypis.
Mest lesið Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Tónlist Hrútar orðnir að kóreskum kálfum Bíó og sjónvarp Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Lífið Fleiri fréttir Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Sjá meira