Fannst í 140 metra fjarlægð eftir tvær vikur á flótta Stefán Ó. Jónsson skrifar 16. ágúst 2017 22:29 Strokuskjaldbakan Aboo komst ekki mjög langt á flóttanum. SHIBUKAWA
Risaskjaldbaka sem hafði verið á flótta úr dýragarði einum í Japan í rúmar tvær vikur er fundin - 140 metrum frá garðinum. Skjaldbakan, sem ber heitið Aboo, stakk af úr Shibukawa-garðinum þann 1. ágúst og var ríkulegum fundarlaunum heitið hverjum þeim sem myndi hafa uppi á henni. Það var svo í dag sem tveir feðgar fundu skjaldbökuna heila á húfi í runna rúmlega 100 metrum frá staðnum sem hún hafði sést síðast. Þeir eiga vona á peningaverðlaunum sem nema um 500 þúsund íslenskum krónum og kortum í garðinn sem gilda ævilangt. Starfsmenn garðsins segja í samtali við fjölmiðla ytra að þeim sé mjög létt eftir að Aboo komst loksins í leitirnar og lofa þeir því að passa betur upp á dýrin í framtíðinni. Aboo kom í dýragarðinn árið 2004 og hefur síðan þá fengið að ferðast óhindrað um hann allan. Að sögn starfsmanna garðsins hefur hún aldrei áður gert tilraun til að stinga af. Skjaldbakan hefur lengi verið eitt vinsælasta dýrið í garðinum og hefur fengið „nóg að borða í dag“ svo hún taki ekki aftur upp á því að leita ævintýra annars staðar.
Mest lesið Tveir fluttir á sjúkrahús: Þriðja útkallið á einum sólarhring Innlent Forsætisráðherrann segir af sér Erlent Öfgahægrið sækir í sig veðrið en miðjan heldur Erlent Lögregla sendi fólk aftur inn úr blíðunni Innlent Iðnaðarnjósnir raunveruleg ógn við íslensk fyrirtæki Innlent Lögregluaðgerðir á nokkrum stöðum í tengslum við vændisrannsókn Innlent „Hvorum megin í sögunni ætlar þú að skipa þér, Sigmundur Davíð?“ Innlent Macron rýfur þingið og boðar til kosninga Erlent „Þetta er bara of dýrt eins og staðan er í dag“ Innlent Pönnukökumeistari með kaffi í pönnukökunum Innlent Fleiri fréttir Öfgahægrið sækir í sig veðrið en miðjan heldur Forsætisráðherrann segir af sér Macron rýfur þingið og boðar til kosninga Benny Gantz hættur í þjóðstjórn Netanjahús Utanríkisráðherra Danmerkur krambúleraður eftir bátaslys Minnist ævintýragjarna og dásamlega mannsins síns „Allt sem gerist í Brussel snertir okkur“ Talið að lík Mosley sé fundið Ísraelar sagðir hafa drepið gísla og ríflega 200 Palestínumenn Drápu 93 við að bjarga gíslunum fjórum Árásarmaðurinn segist ekkert hafa á móti Mette Flæmskur aðskilnaðarflokkur sækir í sig veðrið Færeyskir atvinnurekendur segjast hafðir að spotti Fjórir gíslar frelsaðir á Gasa Vendingar í leit að sjónvarpslækni 39 ára karlmaður í haldi vegna árásarinnar á Mette Frederiksen Frederiksen slegin í miðborg Kaupmannahafnar Framkvæmdastjórn ESB gefur Úkraínu grænt ljós Írar kjósa til Evrópuþings Sunak biðst afsökunar á brotthvarfi frá Normandí Fyrstu úrslit Evrópukosninga staðfesta uppgang fjarhægrisins Tengdi stríðið í Úkraínu við baráttuna gegn fasismanum Frægs sjónvarpslæknis leitað Vill brottvísa hælisleitendum sem fremja alvarlega glæpi Stefnir í óefni náist samningar ekki í bráð Lést á leið til Normandí 80 árum eftir D-dag Göngugarpur uppljóstrar að hæsti foss Kína er buna úr röri Tvær ákærur bætast við í máli Rex Heuermann Leit Trump að varaforsetaefni að komast á skrið „Hrokafull afstaða“ að skilyrða stuðning við Úkraínu Sjá meira