Grænmetisæta í þrjátíu ár 31. ágúst 2017 13:00 Hanna Hlíf hefur yndi af því að búa til grænmetisrétti frá eigin bjrósti. Hér er hún með dóttur sinni, Marsibil Sól.
Hanna Hlíf Bjarnadóttir myndlistarkona gaf út bókina Eldhús grænkerans fyrir síðustu jól. Hanna hefur verið grænmetisæta í 30 ár og býr til alla sína rétti frá grunni. Hanna segir að margt hafi breyst á þeim þrjátíu árum síðan hún gerðist grænmetisæta. Ástæða þess að hún valdi þessa leið í mataræðinu er umhyggja gagnvart dýrum, ekki af heilsufarsástæðum. Eldhús grænkerans er fyrsta bók Hönnu Hlífar en vinkonur hennar, Rut Sigurðardóttir ljósmyndari og Katrín Bessadóttir, unnu hana með henni. „Ég á nóg efni í aðra bók og við vinkonurnar erum spenntar að vinna meira saman. Við byrjuðum allar nýlega í nýjum störfum þannig að tíminn hefur verið naumur. Síðan verð ég með fullt af námskeiðum í haust, bæði hjá Salt Eldhúsi auk þess sem ég er að fara um landið með námskeið,“ segir Hanna og bætir við að hún hafi fundið mikinn áhuga á bókinni og grænmetisfæði almennt undanfarið. Hanna starfar sem verslunarstjóri í safnverslun Listasafns Íslands við Fríkirkjuveg meðfram matargerðinni. Í bókinni eru 120 uppskriftir sem Hanna hefur búið til sem henta öllum tilefnum. Margar þeirra eru fyrir veganista. Hér eru tvær spennandi uppskriftir úr bókinni.Buffalóblómkál1 meðalstór blómkálshaus2?½ dl hveiti, Kaja250 ml vatn3 dl saltstangir, muldar smátt3 dl kornfleks, mulið smátt1 msk. Shakashuka, Krydd- og tehúsið, má sleppaPipar½ b. barbecue-sósaTabasco-sósa, má sleppa Hitið ofn í 220°. Þvoið og brytjið blómkálið í jafna bita. Blandið hveiti og vatni saman, soppan á að vera svipuð að þykkt og vöffludeig, veltið blómkálsbitunum upp úr deiginu. Blandið saltkexraspinu og saltstangamulningnum saman ásamt kryddi, og og veltið bitunum upp úr því. Færið á bökunarpappír og bakið í um 20 mín. eða þangað til þeir eru stökkir og brúnir. Blandið barbecue-sósunni og tabasco-sósunni saman í skál. Takið bitana út úr ofninum og færið þá í skálina með sósunni og veltið upp úr, færið aftur inn í ofn í 20 mín. í viðbót. Borðið með barbecue-sósunni.Barbecue-sósa2 bollar lífræn tómatsósa1 bolli vatn½ bolli apple cider vinegar1 msk. Tamari-sósa1 msk. sítrónusafi1 tsk. tabasco-sósa½ msk. pipar½ msk. onion powder1 tsk. hvítlauksduft1 msk. sinnep5 msk. púðursykur5 msk. reyrsykur Blandið tómatsósu, vatni, apple cider vinegar, Worcestershire-sósu, tabasco og sítrónusafa saman í potti og látið suðuna koma upp. Bætið rest af hráefnum saman við og lækkið hitann. Látið malla í um 10 mínútur.Grillaður halloumi-ostur100 g kúskús1 dl olía1 msk. dijon-sinnep1 msk. púðursykur1 hvítlauksrif, pressað1 msk. balsamedik1 rauður chili-pipar, smátt saxaður og fræhreinsaður50 g þurrkuð trönuber, þurrristuð, Kaja organicSafi úr ½ sítrónu½ bakki sykurbaunir60 g halloumi, skorinn í jafna bita100 g kirsuberjatómatar, skornir í helminga2 vorlaukar, saxaðir, líka græni hlutinn50 g salat, t.d. klettasalatHnefafylli af ferskri mintu, saxaðriHnefafylli af ferskum kóríander, söxuðum Sjóðið kúskús eftir leiðbeiningum og geymið til hliðar. Hrærið saman olíu, sinnepi, hvítlauk, chili, sítrónusafa, balsamediki og púðursykri þangað til sykurinn leysist upp. Bætið þessu út í kúskúsið og blandið vel saman. Sjóðið baunirnar í söltu vatni í um 5-7 mín. Hitið olíu á pönnu og steikið halloumi-ostinn þar til að hann er brúnn á báðum hliðum, kreistið sítrónusafa yfir ostinn í lokin. Bætið öllu grænmeti og fersku kryddi saman við kúskúsið og raðið svo baunum og osti yfir. Gott með góðu balsamsírópi.Grillaður halloumi-ostur.
Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Fleiri fréttir Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins Sjá meira