Sló góðgerðarhögg – aftur Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 12. júlí 2017 11:15 Sigurbjörg Guttormsdóttir, leikskólakennari á barnaspítalanum, Hjörtur Freyr Vigfússon, markaðsstjóri Securitas, Örn Sveinsson og Jóhanna Guðbjörnsdóttir, aðstoðarmaður framkvæmdastjóra kvenna- og barnasviðs Landspítalans.
Auðvitað eru mörg frábær góðgerðarsamtök á Íslandi en ég hef fylgst með því gegnum árin sem Hringskonur hafa gert fyrir barnaspítalann og hann er bara rótgrónastur í hjartanu. Þess vegna ákvað ég að styrkja hann,“ segir Örn Sveinsson tæknimaður hjá Sagafilm sem vann góðgerðarhöggskeppni á golfmóti Securitas nýlega og lét verðlaunaféð, 80.000 krónur, renna til Barnaspítalans. Sem væri kannski ekki í frásögur færandi nema af því að hann vann líka í fyrra og hafði sama hátt á. Hvernig fer hann að þessu? „Golfmót Securitas er fyrirtækjamót, þar sem einum fulltrúa frá stærstu viðskiptavinunum er boðið á golfmót á Suðvesturhorninu. Það var í Hveragerði í fyrra og Borgarnesi núna. Í ár voru þátttakendur 68. Svo er þetta þannig að forstjóri Securitas er á einum teignum og slær sinn bolta inn á grínið. Fyrirtækið heitir 10 þúsund krónum hverjum þeim sem er nær holunni en hann og þeir fara í pott sem síðan er dregið úr. Í fyrra voru sjö nær holunni og ég einn af þeim. Í ár vorum við átta og ég var aftur dreginn út.“ Sem sagt ekkert endilega næstur holunni? „Nei, ekki endilega. Þetta snýst bara um að vera fyrir innan forstjórann. Þegar allir eru búnir að spila er matur og verðlaunaafhending og ég varð að ákveða þar í hvaða góðgerðarmál ég ætlaði að setja peninginn.“ Hefurðu sótt mikið til barnadeildarinnar? „Nei, ég er blessunarlega heppinn. Á þrjú börn og hef bara einu sinni á ævinni þurft að njóta þjónustu deildarinnar sem foreldri, svo það er ekki þannig að ég hafi verið fastagestur þar.“ Ertu dálítið góður í golfi? „Það fer eftir því hvernig á það er litið og við hvern er miðað. Ég hef stundað golf í mörg ár og nýt þess. Þar er frábær félagsskapur og útivera en það besta við golfið er að í því er maður alltaf að reyna að bæta eigin árangur frá degi til dags og sigra sjálfan sig.“
Mest lesið Patrik kaupir glæsihús frænku sinnar Lífið Berbrjósta og bleikhærðar með byltingu Lífið Töluðu íslensku við mannhafið Lífið Fullkominn brúðkaupsdagur í sænskum kastala Lífið Fárveik í París Lífið Skiptir stærðin raunverulega máli? Lífið Frumsýning á Vísi: Stikla fyrir aðra seríu af Bannað að hlæja Lífið Einbýlishús með möguleika á makaskiptum Lífið Ástin sem eftir er framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Opnar sig eftir handtökuna Lífið Fleiri fréttir Sóley og Kormákur skáluðu í síðsumarsólinni Segir lýtaaðgerðir hennar leið til að eldast með reisn Patrik kaupir glæsihús frænku sinnar Opnar sig eftir handtökuna Töluðu íslensku við mannhafið Hin 93 ára Jóhanna skríður enn um garðinn til að halda honum fínum Fárveik í París Fullkominn brúðkaupsdagur í sænskum kastala Skiptir stærðin raunverulega máli? Berbrjósta og bleikhærðar með byltingu Taylor Swift trúlofuð Taumlaus gleði og stjörnum prýddir tónleikar Stórstjörnur í mögulegum ástarþríhyrningi Leikur Elsu Lund í fatla eftir vondan skell Segir Gleðigönguna ekki vera fyrir sig en styður baráttuna Einbýlishús með möguleika á makaskiptum Sagan þegar Villi Vill ákvað að lagið Söknuður yrði í eigin jarðarför Frumsýning á Vísi: Stikla fyrir aðra seríu af Bannað að hlæja Dansinn dunaði á Menningarnótt Will Smith sakaður um að falsa áhorfendur með gervigreind Lil Nas X laus gegn tryggingu „Blessaður, þú ert með heilaæxli“ Woody Allen segist enginn aðdáandi Pútíns Ein glæsilegasta leikkona landsins selur slotið Lil Nas X ákærður fyrir brot á alríkislögum Ljúffengir hafraklattar með kaffinu Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Hegðun Benedikts kom upp um bónorðið „Hjálpar okkur í að nýta þjónustu sem er ekki til á Íslandi í dag en ætti að vera til“ Fagurkeri selur miðbæjarperlu Sjá meira