Fyrsta platan komin út eftir fimm ára starfsemi Guðný Hrönn skrifar 19. júlí 2017 07:00 Milkhouse var stofnuð þegar meðlimir voru í 10. bekk. MYND/BOLLI MAGNÚSSON
Hljómsveitin Milkhouse var að gefa út sína fyrstu breiðskífu. Bandið hefur verið starfandi í fimm ár þrátt fyrir frekar ungan aldur hljómsveitarmeðlima en þau eru öll fædd árið 1996. Nýja platan ber heitið Painted Mirrors. Milkhouse samanstendur af þeim Victori Karli Magnússyni, Auðuni Orra Sigurvinssyni, Andrési Þór Þorvarðarsyni, Katrínu Helgu Ólafsdóttur og Sævari Andra Sigurðarsyni. „Hljómsveitin Milkhouse var stofnuð vorið 2012. Meðlimir hennar voru þá í 10. bekk en þekktust fyrir, þar sem þau voru nemendur í grunnskólum í Hafnarfirði og öll í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar,“ segir Victor spurður út í hljómsveitina sem hann er meðlimur í. „Rætur tónsmíðanna liggja í djassi en nýir áhrifavaldur og aukin reynsla hefur fært tónlistina einhvert allt annað. Erfitt er að máta hana við tiltekna tónlistarstefnu en e.t.v. mætti staðsetja hana á vegamótum lista-rokks og drauma-popps. Áhrifavaldarnir eru margir, enda meðlimirnir fimm,“ segir Victor um Milkhouse sem var valin Hljómsveit fólksins á úrslitakvöldi Músíktilrauna 2014. Í síðustu viku gaf bandið út sína fyrstu breiðskífu sem ber heitið Painted Mirrors.„Painted Mirrors er tólf laga plata. Lögin eru mörg hver ólík en þrátt fyrir það er heildarsvipur á plötunni; eitthvert samhengi sem situr eftir. Lögin fjalla um mannleg samskipti og sambönd: sambönd vina, fjölskyldna og elskhuga.“ „Enn fremur fjalla þau um hvernig við sem einstaklingar smíðum eigin sjálfsmynd eftir því hvaða sambönd við kjósum að rækta eða ekki. Titill plötunnar vísar að einhverju leyti í það. Einstaklingurinn reynir eftir bestu getu að mála eða skapa spegilmynd sína, en er þó ávallt berskjaldaður fyrir því hvernig samfélagið sér hann.“ Gífurleg vinna að bakiAðspurður hvernig hafi gengið að vinna þessa fyrstu plötu hljómsveitarinnar segir Victor: „Það gekk vel. Vinnan sem liggur að baki er gífurleg, en sú vinna var bæði gefandi og skemmtileg. Ætlunin var að vinna þetta af mikilli vandvirkni og það tókst, einkum vegna frábærra samstarfsfélaga, en þeir Gestur Sveinsson og Tómas Guðmundsson stýrðu upptökum og eftirvinnslu. Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir hannaði plötuumslagið og Agnar Freyr Stefánsson sá um umbrotið, og vorum við afar ánægð með útkomuna. Afmynduð brjóstmynd prýðir umslagið, en manneskjan er sett saman úr andlitum allra hljómsveitarmeðlima og vísar aftur að einhverju leyti í titil plötunnar,“ útskýrir Victor. Hann segir þau öll í hljómsveitinni vera mjög stolt af afurðinni. „Ég er sérlega stoltur af þeirri staðreynd að allir aðstandendur plötunnar eru ungir. Hljómsveitin, upptökustjórar, grafískir listamenn, við erum öll um tvítugt. Grósku er bersýnilega að finna í íslensku listalífi, ef þú spyrð mig.“ Til viðbótar við plötuútgáfuna sendi hljómsveitin líka frá sér tónlistarmyndband við lagið Say My Name. „Tónlistarmyndbandið við Say My Name var frumsýnt í síðustu viku, þegar platan kom út. Myndbandið segir sögu tveggja einstaklinga, en sjón er sögu ríkari,“ segir Victor sem hvetur áhugasama til að horfa á myndbandið á YouTube.Hvað er svo fram undan? „Við höldum útgáfutónleika í Iðnó á föstudaginn þar sem hópur tónlistarmanna mun spila með okkur. Miðar eru til sölu á Tix.is og í Iðnó. Svo eru fleiri tónlistarmyndbönd væntanleg á næstu vikum og mánuðum.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Fleiri fréttir Minntist pabba síns John Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Sjá meira