Berufsverbot Óttar Guðmundsson skrifar 29. apríl 2017 07:00 Fátt skiptir fólk meira máli en atvinnan. Þetta vissu forsvarsmenn Þriðja ríkisins vel, enda beittu þeir svokölluðu Berufsverbot til að refsa mönnum sem voru þeim ekki þóknanlegir. Viðkomandi var rekinn úr vinnu og gert ókleift að leita sér sambærilegra starfa. Þannig tókst að lama mikinn fjölda fólks sem ekki hlýddi tónsprota stjórnandans. Mannkynssagan endurtekur sig í sífellu vegna þess að mannlegt eðli og innræti breytast ekki. Greinilegt er að margir heillast af þessari aðferðafræði enda reynist hún sérlega vel. Nýlegar fréttir frá Tyrklandi herma að Erdogan soldán hafi rekið mörg þúsund manns úr vinnu í refsingarskyni fyrir glæpi og uppsteyt. Hérlendis hrífast margir af Berufsverbot. Mér hefur stöku sinnum tekist að reita kommentakerfi fjölmiðla til reiði. Fjölmargir hafa þá krafist þess að ég yrði rekinn úr vinnu og sviptur lækningaleyfi. Presturinn í Laugarneskirkju efndi til nýstárlegrar uppákomu á föstudaginn langa. Stór og hávær hópur krafðist þess að klerkur yrði samstundis settur af fyrir uppátæki sín. Fyrir einhverjum árum viðraði Snorri í Betel skoðanir Biblíunnar á ákveðnum samfélagshópi. Vinnuveitandi hans rak hann fljótlega úr starfi. Akureyrarbær varð þó að sæta því að aðgerðin var dæmd ólögleg. Bæjarstjórnin hefur eflaust litið með öfundaraugum til hinna sterku foringja. Þeir þurfa ekki að beygja sig fyrir smámunasömum lagasnápum sem skilja ekki nauðsynlegar pólitískar hreinsunaraðgerðir. Auðvitað er sjálfsagt að reka alla úr vinnu sem ekki vilja ganga í takt enda hefur það gefið ágæta raun. Takmarkið hlýtur að vera samfélag þar sem allir eru sammála í veigamiklum málum. Tjáningarfrelsi er bara til trafala og veldur sundrungu í samfélaginu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Óttar Guðmundsson Mest lesið Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson Skoðun Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson Skoðun Óafsakanlegt, en ekki óleysanlegt Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Tæknin kemur hratt - en ávinningurinn ekki sjálfkrafa Gísli Rafn Ólafsson Skoðun FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson Skoðun