Sólrún Diego opnar nýja bloggsíðu: „Finnst spennandi að vera ein“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 11. ágúst 2017 16:00 Sólrún Diego bloggaði áður á síðunni mamie.is
Snapchat-stjarnan Sólrún Lilja Diego er byrjað að blogga aftur en hún hefur ekkert verið að skrifa síðan Mamie mömmubloggsíðan lokaði í vor. Sólrún er gríðarlega vinsæl á samfélagsmiðlum en yfir 20 þúsund einstaklingar fylgjast með henni í gegnum Snapchat á hverjum degi. Í samtali við Vísi segir Sólrún að hún hafi fengið margar beiðnir frá sínum fylgjendum um að byrja að blogga á ný.Saknaði þess að blogga „Svo er líka annað barn á leiðinni og mér fannst tilvalið að geta deilt ýmsu í kringum það.“ Hún á von á sínu öðru barni í febrúar á næsta ári með unnusta sínum Frans en fyrir eiga þau dótturina Maísól. Sólrún segir að hún hafi fengið boð um að skrifa á aðrar síður með öðrum einstaklingum en það heillaði hana ekki. „Það er gaman að prófa eitthvað nýtt, finnst spennandi að vera ein og stjórna þessu sjálf. Ég saknaði þess að geta tjáð mig og deilt upplýsingum þar sem þetta er öðruvísi en á Snapchat. Ég var einnig orðin þreytt á að segja sömu hlutina aftur og aftur á Snapchat. Það er gott að geta sett þetta inn á annan stærri miðil sem eyðist ekki,“ útskýrir Sólrún en það sem hún setur á Snapchat hverfur út aftur eftir sólahring. Á nýju bloggsíðunni solrundiego.is ætlar hún meðal annars að skrifa færslur um börn, heimilið, mat, sitt daglega líf, meðgönguna og auðvitað húsráð en hún er orðin þekkt fyrir sniðug ráð tengd heimilinu.
Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Tíska og hönnun Fleiri fréttir Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Sjá meira