Sirkusköttur á róluvellinum Brynhildur Björnsdóttir skrifar 12. júlí 2017 15:00 Í sýningunni Róló leikur Jóakim kött sem fer sínar eigin leiðir. Vísir/Eyþór
Jóakim Meyvant Kvaran er nýútskrifaður með BA í sirkuslistum. Hann vinnur hjá Sirkus Íslands sem frumsýnir þrjár nýjar sýningar um helgina og hlakkar til að leika listir sínar í sumar. „Ég er nýkominn heim eftir fjögurra ára háskólanám í Rotterdam þaðan sem ég útskrifaðist í júní með BA-próf í sirkuslistum. Ég sérhæfði mig í súlufimi, sem er ekki það sama og súlufitness heldur er súlan ansi miklu hærri og hreyfingin öðruvísi. Aðrir voru til dæmis með jafnvægislistir, fimleika eða loftfimleika sem aðalgrein en fyrir utan það þurfum við líka að æfa okkur í undirstöðuatriðum eins og að djöggla og standa á höndum. Við erum líka mikið í leiklistaræfingum og dansi þannig að námið er mjög fjölbreytt og skóladagurinn oft langur.“ Sirkusáhuginn hafði alltaf blundað í Jóakim og sem krakki hafði hann gaman af því að leika sér á hjólaskautum og með bolta. En það má segja að fyrstu skrefin á sirkusbrautinni hafi verið stigin þegar hann sá einhjól í búðarglugga. „Ég var sautján ára og kolféll fyrir einhjólinu og keypti það strax. Svo veðjaði ég við félaga minn um hvor okkar yrði fljótari að læra á hjólið. Þannig að við vorum að æfa okkur á hverjum degi í einhverjar vikur niðri í bæ sem leiddi af sér að okkur var boðið á sirkusæfingu í Kramhúsinu með þeim hópi sem seinna stofnaði Sirkus Íslands. Og áður en við vissum af vorum við farnir að vinna við þetta, sýna og kenna.“ Jóakim hefur því verið hluti af Sirkus Íslands næstum frá byrjun. „Fyrsta sumarsýningin okkar var 2011 í Tjarnarbíó og það var ágætt að vera þar. Á Sirkushátíð sem var haldin í Vatnsmýrinni 2013, þar sem reis heilt þorp af sirkustjöldum, áttuðum við okkur hins vegar á því hvað það er mikilvægt fyrir sirkus að eiga sirkustjald. Við efndum til söfnunar á Karolina Fund og árið 2014 fengum við Jöklu og erum búin að vera að sýna síðan þá.“Verða mest á Klambratúni í sumar Í sumar verður Jökla mest á Klambratúni en áður hefur sirkusinn farið með tjaldið um allt land.Sirkuslistamaðurinn Jóakim ögrar þyngdaraflnu á sex metra hárri súlu.„Við förum tvær helgar á Selfoss og komum aftur til Reykjavíkur en ætlum svo vonandi að flakka um landið með þessar sýningar næsta sumar.“ Sirkusinn er með þrjár nýjar sýningar í sumar, að sögn Jóakims. „Sú stærsta er fjölskyldusýningin Róló, Litli Sirkus er hugsuð fyrir undir fimm ára og foreldra þeirra og svo er það Skinnsemi þar sem við leyfum okkur fullorðinslegri húmor.“ Róló er sýning með söguþræði og gerist eins og nafnið bendir til á róluvelli. „Karakterinn minn er svona hálfgerður villiköttur sem á heima á leikvellinum og er pínulítið góður með sig en hefur gaman af því að ráfa um og heimsækja börnin sem eru að leika sér.“ Hann má ekki segja mikið um aðrar persónur. „En ég get lofað því að lokaatriðið verður það flottasta sem við höfum nokkurn tíma sýnt.“ Sirkusinn verður með sýningar allar helgar í sumar en síðasta sýningin er 20. ágúst, sunnudaginn eftir menningarnótt. Nánari upplýsingar má finna á sirkusislands.is.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf „Þetta eru allt krakkar í íþróttum“ Lífið samstarf „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“