Konan í dalnum komin aftur Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 18. júlí 2017 09:00 Bjarni segir Konuna í dalnum og dæturnar sjö hafa verið umsetna á söfnum og í fornbókabúðum síðustu ár. Vísir/Stefán
Bókin Konan í dalnum og dæturnar sjö, eftir Guðmund G. Hagalín, hefur verið endurútgefin, 63 árum eftir að hún birtist Íslendingum fyrst og var tekið opnum örmum. Hún segir sögu Moniku Helgadóttur á Merkigili (1901-1988). Sæmundur á Selfossi stendur að útgáfunni og þar er Bjarni Harðarson með veldissprotann. Hvað skyldi koma strák af Suðurlandsundirlendinu til þess að lyfta fram sögu löngu látinnar konu úr afdölum nyrðra? „Svona hetjusaga konu úr íslenskri sveit á erindi við okkur, bæði til að minna okkur á hver við erum og hvaðan við komum og líka til að rétta hlut kvenna í fyrri aldar sögu. Ég tel að hún verði kærkomið lesefni því erfitt hefur verið að nálgast hana síðustu ár. Svo er ég þess líka ævinlega minnugur að ég er að einum fjórða hlut Skagfirðingur og er stoltur af því.“ Bjarni segir Moniku eina af konum sinnar kynslóðar sem náði að rísa upp fyrir sitt daglega streð fyrir eigið atgervi eins og hún birtist í bók Hagalíns. „Þarna kynnumst við því hvernig það gerist að jafn afskekktur bær og Merkigil er byggður upp á nútímavísu. Margir þekkja bæinn nú orðið því þangað kemur fjöldi fólks árlega um verslunarmannahelgar eftir Ábæjarmessu. Ég býst við að verða þar í ár og hitta fyrir Skagfirðinga í þessum fagra dal.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf John Frieda er látinn Tíska og hönnun „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist „Þetta eru allt krakkar í íþróttum“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“