Ráðleggingar Wöndu eru sér á báti Guðný Hrönn skrifar 31. júlí 2017 16:30 Wanda Star er þekkt fyrir umdeildar skoðanir sínar og ráðleggingar til túrista á Íslandi. vísir/andri marinó
Dragdrottningin hispurslausa Wanda Star vinnur við að aðstoða túrista á Íslandi en þær leiðbeiningar sem hún gefur eru oftar en ekki umdeildar enda er hún ekkert að skafa af hlutunum. Hinn breski Richard Chapman hefur búið á Íslandi í þrjú ár og starfar nú við það að leiðbeina ferðamönnum sem koma til landsins. Hann kemur líka reglulega fram í dragi sem hin hispurslausa Wanda Star og fjallar um Ísland. Richard starfar hjá Guide to Iceland og hans hlutverk er að setja saman hjálplega texta fyrir túrista sem koma hingað til lands. Richard skrifar bæði sem hann sjálfur, Richard Chapman, en líka sem hin hreinskilna Wanda Star sem er afar ólík Richard. „Hlutverk mitt er aðallega að selja Ísland og leiðbeina ferðamönnum. En Wanda er aðallega að vara fólk við Íslandi og gera góðlátlegt grín að landi og þjóð. Hennar pistlar eru umdeildir og skapa alltaf smá umtal,“ segir Richard sem kemur reglulega fram sem Wanda með hópnum Drag-Súgur. Við fengum Wöndu til að setja saman leiðbeiningar um hvað á og á ekki að gera á Íslandi.„Fossar eru leiðinlegir, tröll eru ógeðsleg og jafnrétti kynjanna og umhverfisvernd er orðið þreytt,“ útskýrir Wanda sem segir hefðbundin meðmæli sem túristar fá hér á landi ekki höfða til allra. Hún tekur því málin í sínar hendur og skaffar hér „alvöru“ ráð.Wanda mælir með að túristar á Íslandi... 1. tali við Íslending Það lætur þér líða eins og mjög veraldarvönum einstaklingi: að tala við einhvern sem getur talið húðlitina sem hann eða hún hefur séð á fingrum annarrar handar. 2. leggi sitt af mörkum í náttúrunni Íslenska náttúran er leiðinleg og grá. Lífgaðu upp á hana með rauðum kókflöskum og appelsínugulum sígarettustubbum. 3. noti Internetið Á Íslandi eru jöklar, fossar, svartar strendur, hraun og eldfjöll og þú getur skoðað myndir af öllu þessu á netinu með ókeypis Wifi-i sem þú finnur á flugvellinum. 4. fari á söfn En það er svo lítið um menningu á Íslandi að þau hleypa mér upp á svið. 5. njóti djammmenningarinnar Þetta er ekki merkilegt, en í það minnsta einhver menning.Wanda mælir EKKI með að túristar á Íslandi...1. komi til Íslands Þetta eru fyrstu mistök sem allir túrista á Íslandi gera. 2. treysti konum Íslenskar konur hafa náð fram miklu jafnrétti, svona mikið jafnrétti kynja þekkist ekki annars staðar í heiminum. Passið ykkur. 3. drekki kranavatnið Það er ekkert flúor, blý eða kvikasilfur í vatninu á Íslandi. Þetta þýðir að þú færð ekki vítamínin þín. Eina sem þú ættir að drekka á Íslandi er innfluttur flöskubjór. 4. lesi viðvörunarskilti Fáðu þér sundsprett í Reynisfjöru eða Jökulsárlóni. Þú sjálfur/sjálf þekkir þín mörk best. 5. kaupi íslenska lopapeysu Bíddu í staðinn eftir grænlenskum ísbirni á Vestfjörðum, þar færðu alvöru pels. Svo getur þú líka alltaf nælt þér í selskinnspels í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. „Hér hafið þið það. Sannleikurinn um hvað skal og skal ekki gera á Íslandi. Ég meina þetta,“ segir Wanda.
Mest lesið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið Laufey á landinu Lífið Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Fleiri fréttir Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Sjá meira