Glamour

Kylie Jenner seldi fyrir tæpa 2 milljarða á einum degi

Ritstjórn skrifar
Kylie Jenner brosir breitt núna.
Kylie Jenner brosir breitt núna. Glamour/
Hin 21 árs gamla Kylie Jenner er heldur betur að verða stór í snyrtivörugeiranum með merki sínu Kylie Jenner Cosmetics. Merkið hefur verið á miklu flugi síðan það var stofnað fyrir tæpum tveimur árum síðan.

Samkvæmt viðtali við WWD þá seldi Jenner sérstakan kassa af snyrtivörum í tengslum við afmælið sitt fyrir rúmlega einn milljarð íslenska króna á einum degi (!) og sömuleiðis svokallað Holiday set fyrir tæpa 2 milljarða (!!) íslenskra króna, á einum degi. Þetta eru engar smá sölutölur og eitthvað stóru snyrtivörurisarnir yrðu heldur betur ánægðir með. 

Það er greinilegt að þessi yngsta systir í Kardashian fjölskyldunni er með viðskiptavitið á hreinu og er byggja upp sitt eigið veldi. 





Did you enter the signed birthday box giveaway yet? Go to KylieCosmetics.com

A post shared by Kylie Cosmetics (@kyliecosmetics) on






×