Ótrúlegur bati Hetju: Gat ekki staðið í átján daga Atli Ísleifsson skrifar 5. desember 2017 21:24 Hetja er nú komin aftur heim í Vatnsdalinn. Ingunn Reynisdóttir
Folaldið Hetja er komið aftur heim á bæinn Hof í Vatnsdal eftir að hafa dvalið í um þrjá mánuði hjá dýralækni, í kjölfar þess að hafa verið föst í holu í um tvo sólarhringa í ágúst. Folaldið var illa slasað og var á tímabili tvísýnt hvort það myndi lifa af. Dýralæknirinn Ingunn Reynisdóttir á Syðri-Völlum í Miðfirði birti magnaðar myndir og myndbönd af folaldinu, sárum þess og frá heimsókn eigendanna. Eline Manon Schrijver á bænum Hofi segir í samtali við Vísi að fólkið á bænum hafi tekið eftir því í lok ágúst að merin Þyrla hafi verið ein á ferli í hlíðum fjallsins. Þetta hafi þótt undarlegt þar sem hún væri vanalega á ferð með folaldi sínu. Nokkurn tíma tók þar til að Þyrla leiddi þau að svæðinu þar sem Hetja fannst í holunni. Með hjálp góðra manna tókst svo að lokum að grafa Hetju upp.Með lungnabólgu, háan hita og ígerð Nokkrum dögum síðar ákváðu eigendurnir að fara með folaldið til Ingunnar þegar það var orðið mjög veikt. „Með lungnabólgu, háan hita og feiknarlega mikla ígerð í öllum fótum. Lá hún milli heims og helju í 5 sólarhringa en allan tímann tíndi hún upp í fóður og drakk með hjálp. Fyrst eftir 18 sólarhringa var hún orðin það hress að hægt svar að hjálpa henni á fætur og gat hún staðið í nokkrar mínútur þann daginn. Húðin sérstaklega á framfótum datt af og réttisinin á vinstra framfæti gaf sig vegna ígerðarinnar. Hún þurfti því tíð umbúðaskipti og var með spelku í 2 mánuði. Allan tímann var hún eins og ljós, lá og lét gæla við sig á meðan skipt var um umbúðir sama hversu sársaukafullt þetta var,“ segir Ingunn. Nú þremur mánuðum eftir að Hetja fannst í holunni er hún komin aftur heim á Hof þar sem hún hleypur út um allt. „Ótrúlegt hvað þessar skepnur okkar eru lífseigar og hvað hægt er að græða,“ segir Ingunn í færslu sinni.Sjá má myndirnar og myndböndin að neðan.
Mest lesið Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Hrútar orðnir að kóreskum kálfum Bíó og sjónvarp Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Tónlist Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Lífið Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Lífið Fleiri fréttir Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Sjá meira