Upphaf jólaundirbúnings smekkfólks bæjarins Benedikt Bóas skrifar 30. nóvember 2017 11:00 Það eru ekki allir sem vita að rokkstjörnurnar Bibbi og Villi ólust upp saman á Laugum í Reykjadal þar sem tónlistarferillinn hófst með blokkflautukennslu. Þeir enduðu í keppni á skemmtikvöldinu þar sem Villi sigraði en Bibbi var allt annað en sáttur við dómgæsluna. Vísir/Anton Brink
Þetta var frábært og alveg meiriháttar skemmtilegt kvöld,“ segir Vilhelm Anton Jónsson, söngvari í 200.000 Naglbítum, en hann var einn af fjölmörgum sem mættu á kvöldskemmtun Kormáks og Skjaldar sem haldin var á þriðjudag. Skemmtunin fór fram í Þjóðleikhúskjallaranum og sem fyrr sáu Hringir um undirspil á meðan á sýningu stóð. Hresst og skemmtilegt fólk sýndi brot af þeim fatnaði sem fæst í Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar og Kvenfataverzlun Kormáks & Skjaldar. Þá sagði í kynningunni að skemmtunin markaði upphaf jólaundirbúnings hjá smekkfólki bæjarins. „Það hljómar algjörlega fullkomlega skeytin inn,“ segir Vilhelm og hlær. Á myndinni hér til hliðar eru þeir uppeldisbræður, Vilhelm og Snæbjörn Ragnarsson, að ræða við Frímann Gunnarsson sem sá um að kynna herlegheitin. „Það sem gerðist var að Naglbítar sýndu afar smekklegan kúrekaklæðnað frá Bandaríkjunum. Þá löbbuðu Skálmaldarbræður, Bibbi og Baldur, inn í afar smekklegum jakkafötum. Úr varð smá vandræðaleg stund sem var leyst með blokkflautueinvígi, sem er gamall siður að norðan þegar Akureyringar og Húsvíkingar hittast. Við vorum í hörku blokkflautueinvígi sem lauk þannig að Naglbítar sigruðu, en við enduðum með að spila saman algjört tímamótaefni. Á myndinni erum við að fara yfir einhvers konar ósætti við dómgæslu. Við erum nefnilega allir frá Laugum í Reykjadal og lærðum allir á blokkflautu hjá Ragnari heitnum, pabba þeirra Baldurs og Bibba.“ 200.000 Naglbítar eru þessa stundina að gera plötu sem á að koma í búðir á næsta ári, bæði á vínyl og kassettu. „Við erum að slíta naglbítana upp úr verkfæratöskunni og búnir að senda frá okkur tvö lög. Það er plata væntanleg á næsta ári enda er góður tími til að gefa út efni núna, hvort sem er á vínyl eða kassettu.“Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, ásamt Ólafi Þ. Harðarsyni kosningasérfræðingi litu inn. Annar með fráhneppt, hinn með hneppt upp í háls.Þrándur ?Þórarinsson ?listmálari, ásamt gítarleikaranum Erni Eldjárn og Ragnari Egilssyni með ?eðaldrykki í ?glasi.Bibbi og Kári Naglbítur ræða um rokk og ról en Skálmöld er með aðventutónleika andskotans á laugardag. Skál fyrir því.Böðvar Eggert Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, er einn best klæddi karlmaður þessa lands. Hér á snakki með Stjúra, stjörnuhárgreiðslumanni Kormáks og Skjaldar. Hvert smáatriði er í lagi á þessum tveimur.Stjúri vinnur í hnakka fréttalesarans Gunnars Reynis á Stöð 2. Lubbinn þarf ekki að vera mikill til þess að Stjúri geti unnið með skærin.Hresst og skemmtilegt fólk mun sýna brot af þeim fatnaði sem fæst í Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar og Kvenfataverzlun Kormáks & Skjaldar. Á milli tískusýninga verða tónlistaratriði, uppistand og óvæntar uppákomur í höndum velunnara verslananna.
Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Fleiri fréttir Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sjá meira