Frá krúttulegum spýtuköllum í realískan hrylling Stefán Þór Hjartarson skrifar 27. nóvember 2017 09:45 Hugleikur fékk vin sinn Þránd Þórarinsson til að henda í eitt stykki málverk. Vísir/Anton Brink „
Ég gef árlega út dagatal og ég er að sýna myndirnar sem eru í þessu dagatali í ár. Ég var nú með allt aðra pælingu að dagatali en það var útgefandi minn sem stakk upp á að ég myndi fá einhverja aðra til að „kovera“ teikningar eftir mig,“ segir Hugleikur Dagsson en hann opnaði á laugardaginn í Gallerý Porti á Laugaveginum sýninguna Ábreiður en þar fær hann tólf aðra listamenn til að túlka, eða „kovera“ myndir eftir hann. Sýningin stendur yfir í viku og mun Hugleikur vera á svæðinu næstkomandi fimmtudag þar sem hann teiknar sérpantaðar myndir fyrir gesti og gangandi, en það er bara þann dag sem það verður í boði.Er útgefandinn kominn með leiða á þér? „Já, hann er búinn að fá rosalegan leiða á öllum þessum peningum sem ég raka inn fyrir hann. En allavegana, þá stakk hann upp á þessu og ég samþykkti það – svo ég þarf þá ekki að gera neitt í rauninni. Ég hafði samband við tólf listamenn, þá listamenn sem ég var forvitinn að sjá hvernig myndu túlka þessar teikningar, og gaf þeim bara lausan tauminn – þau máttu öll velja sína mynd og niðurstaðan var þetta sem er hægt að kíkja á á þessari sýningu. Það verður líka hægt að kaupa dagatalið þarna.“Hvaða fólk fékkstu þarna með þér? „Þarna eru góðir vinir eins og Þrándur Þórarinsson og Lóa Hlín. Svo er líka fólk sem hefur veitt mér innblástur eins og Sigrún Eldjárn, Halldór Baldursson og Þorri Hringsson – en hann er minn gamli myndasögukennari. Síðan eru þarna líka teiknarar sem ég hef unnið með áður: Rán Flygenring, sem hefur teiknað fyrir heila myndasögu og líka Pétur Antonsson og Árni Jón Gunnarsson – þau hafa öll unnið með mér í myndasöguprójektinu Endir sem ég gef út árlega.“Eru þetta allt teikningar eða eru til að mynda málverk og annað þarna? „Þrándur er listmálari, þannig að hans verk er málað. Flest eru þau öll starfandi „illustratorar“ þannig að þetta er mest teikningar, sumt af þessu eru grafíkverk – þannig að þetta er svona skalinn sem þetta fer.“Ein mynda Hugleiks sést hér í aðeins öðruvísi búningi. Vísir/Anton BrinkOg útkoman, er hún fyndnari eða ófyndnari? „Það er auðvitað bara smekksatriði. Mínar teikningar eru þannig að einfaldleikinn er ómissandi hluti af húmornum, sem er gjarnan myrkur og ógeðslegur – þannig að um leið og þú ferð að gera þetta eitthvað realískara, en allt er auðvitað realískara en spýtukallar sem eru eins langt frá raunveruleikanum og hægt er, þá verður þetta meiri „horror“, húmorinn breytist í hrylling. Það hefur alltaf verið málið með það sem ég er að gera – það er hræðilegt og ógeðslegt dót, en það er framsett þannig að það verður eiginlega bara krúttulegt og skapar ákveðinn kontrast og þann brandara sem myndin í raun er – það er kontrastinn sem býr til pönslænið. Þegar einhver annar tekur þetta fyrir þá verður þetta bara í rauninni meira „skerí“ og súrara, í sumum tilvikum. Þó myndi ég segja að henni Helgu Páleyju, sem á þarna eina mynd, hafi tekist að vera fyndnari en ég. Það er eitthvað í hennar frásögn sem lætur mig alltaf hlæja upphátt.“ Á sýningunni verða líka til sýnis nýjustu myndasögurnar hans Hugleiks frá síðustu tveimur árum. Þau verk eru öll úr brandarasafninu Er þetta frétt?
Mest lesið Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Hrútar orðnir að kóreskum kálfum Bíó og sjónvarp Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Lífið Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Lífið Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Tónlist Fleiri fréttir Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Sjá meira