Stjörnuspá Siggu Kling - Vogin: Getur boðað jarðskjálfta 6. október 2017 09:00
Elsku hjartans smarta Vog. Þú ert svo sannarlega að fara inn í spennandi upphaf í lífi þínu og mjög margt mun koma þér á óvart og hefur komið á óvart á síðustu dögum. Í þér býr svo gömul sál, sem vill að allt í kring sé með friði og spekt. En þú þráir að hafa spennu, en samt þennan dásamlega frið og það getur verið erfitt að ná jafnvægi í því. Í kringum þetta tímabil, sem þú ert að hlaupa inn í, muntu finna fyrir titringi í hjarta þínu og ástarskjálfta. Þú átt eftir að velta því mikið fyrir þér hvort muni borga sig fyrir þig, trygglyndi huga og anda eða háspenna og ástargleði. Það getur boðað jarðskjálfta og háspenna getur verið lífshættuleg, taktu ákvörðun, elskan mín, um hvað þú vilt því þá mun krafturinn fylgja þér eins og fallegur fellibylur. Á þessu tímabili muntu finna nýjar leiðir sem gefa þér hamingju, en hamingjan er fólgin inni í sjálfri þér – ekki í peningum, veraldlegum hlutum eða háskólagráðum. Í öllum þessum hraða sem þú ert að fara í, þá þarftu að takmarka allt það vesen sem þú getur svo sannarlega lokað fyrir. Og hjartað þitt stóra hefur þá tilhneigingu að valda þér sárri angist því þú hefur svo hjartnæmar skoðanir á öllu – meira að segja ástandinu í heiminum og vilt bæta það, þetta er þér svo eðlislægt. Það á eftir að verða þér auðvelt að taka ákvörðun um með hverjum og hvar þú vilt standa í lífinu, þó svo að margir geri grín að því að Vogin geti aldrei tekið ákvörðun um neitt. Það er bara vegna þess að þú hefur svo margar hugsanir og margar ákvarðanir sem passa stundum ekki hver við aðra og eru jafnvel ekki vinir. Það besta sem þú gætir gert í þessari spennandi stöðu er að leita álits og fá lánaða dómgreind annarra, annars geturðu hugsað þig í kaf. Fjölskyldan mun alltaf standa efst í huga þínum og eðli þitt er að fórna þér helst fyrir hana. Ég vil segja við þig´, hjartað mitt, að þú ERT fjölskyldan, en fjölskylda er eins og eikartré og ef þú ætlar að kljúfa slíkt tré niður í margar einingar þá deyr það. Sýndu mildi og byggðu skjaldborg í kringum þá sem þú elskar. Þú hefur það eðlisfar að vera bæði ströng og blíð og þar af leiðandi sveiflast tilfinningar þínar eins og veðurfarið á Íslandi, ekki dæma þig fyrir það. Við hin elskum svona fólk eins og þig sem er eins litríkt og regnboginn. Hættu svo að vinna upp einhvern glataðan tíma og væla yfir því að þú hafir ekki geta gert þetta eða hitt út af þessu eða hinu. Fáðu lánaða skipulagshæfileika Meyjunnar og settu hlutina svolítið upp í Excel eins asnalega og það nú getur hljómað. Þú þarft heldur enga staðfestingu á því að þú sért hæfileikarík og heillandi, einungis vita að það er staðreynd. Það er yfir orkunni þinni að þú færð þá virðingu sem þú sækist eftir, pláss í þeim vinahóp sem þú sækir í og færð þá útkomu að þú myndir alls ekki vilja vera nein önnur en þú ert.Frægir í Voginni: Kári Árnason landsliðsmaður, Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur, Hjalti flugþjónn, Ingi í Sign, Jón Axel Ólafsson athafnamaður, Matt Damon leikari, Íris Berg, fatahönnuðurinn minn, Mary Poppins, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og sjónvarpskona, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Lilja Dögg Alfreðsdóttir alþingiskona, Ósk Gunnarsdóttir útvarpskona, María Einarsdóttir ritari stjörnuspánnar, Arnþrúður Karlsdóttir útvarp Saga, Skúli Mogensen, Hulda Hólmkelsdóttir fréttakona, Walter Matthau, Olavia Newton John, Ragga Gísla, Steinn Steinarr, Margret Thatcher, Ragnheiður Elín Árnadóttir, minn meistari.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Boðaði vinkonurnar í bústað eftir að hafa upplifað Tinder á sterum Lífið Selena Gomez giftist Benny Blanco Lífið Ætla að syngja sig hás og dansa við Komdu um jólin Lífið samstarf Fann ástina loksins þegar hann tók sér marga elskhuga Lífið Blondie verður stjarnan á RIFF um helgina Lífið Seld sú hugmynd að grannur líkami sé það eina sem er aðlaðandi Lífið Ellefu ára læðan Lúsí ein eftir í heimilisleit hjá Kattholti Lífið Krakkatían: Lestrarkeppni, flugumferð og leiksýning Lífið Laddi 75 ára: Skapar nýja karaktera í lyftuspeglum Lífið Serumið sem snýr öldrun húðarinnar við Lífið samstarf Fleiri fréttir Selena Gomez giftist Benny Blanco Krakkatían: Lestrarkeppni, flugumferð og leiksýning Rapparinn og málverndarsinninn frjáls ferða sinna Boðaði vinkonurnar í bústað eftir að hafa upplifað Tinder á sterum Fréttatía vikunnar: Moulin Rouge, Blóðbankinn og Eurovision „Lætur mér líða eins og tími minn í Hollywood hafi verið ómaksins virði“ Fögnuðu sögulegum 850 þúsund króna hátalara Ella Egils Björgvin Franz brotinn en slær í gegn í Ladda og ræktinni Sonur Fóstbróður slær í gegn: „Ég er fastur þarna núna, orðinn háður“ „Kristrún Frostadóttir frá... Finnlandi?“ Lamaðist og missti sjón en fann styrk í sjálfri sér Víkingur Heiðar hlaut mjög virt verðlaun Fyrstur til að skíða niður Everest án súrefnis „Það sýður miklu frekar upp úr við uppvaskið“ „Mjög fallegt“ hús og „fullfrágengin“ lóð Elli Egils hannaði hátalara fyrir Bang & Olufsen Elli Egils hélt að Elli Egils væri grín Framtíð Ísraela í Eurovision ákveðin í nóvember Fargufan nýjasta æðið á Íslandi Selja íbúð í Vesturbænum: „Við eigum of mörg börn til að búa í henni áfram“ Lýsir raunum einhleypra í Reykjavík: „Tilhugalífið minnir á lélegt bókunarkerfi“ Þetta eru uppáhalds barnabækur ráðherranna Ástfangin á ný Hollywood-stjarna slær sér upp með prins „Er ekki hér til að keppast um fegurð“ Þriðja í heiminn hjá Rihönnu og A$AP Rocky Er ekki eðlilegt að stunda kynlíf á afmælinu? Hefur keypt fasteignir fyrir rúman milljarð íslenskra króna á árinu Minntist bróður síns fyrir fullum sal Leiðir skilja hjá Svala og Jóhönnu Sjá meira