Ungfrú Tyrkland svipt titlinum vegna óviðeigandi tísts Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 22. september 2017 21:12 Itir Esen er hér fyrir miðju og Asli Sumen, sem tekur við titlinum, er til vinstri. Vísir/Getty
Itir Esen, sigurvegari Ungfrú Tyrkland hefur verið svipt titli sínum eftir tíst sem vísaði í misheppnaða valdaránstilraun hersins þar í landi þann 15. júlí 2016. Skipuleggjendur keppninnar sögðu tíst Esen vera „óviðunandi“ og staðfestu að hún væri svipt titlinum einungis nokkrum klukkutímum eftir að hún var krýnd. Tístið birti Esen í júlí, um það leyti sem eitt ár var liðið frá valdaránstilrauninni þar sem nær 250 manns létu lífið. „Ég byrjaði á blæðingum í morgun til að halda upp á píslarvottadaginn 15. júlí. Ég held upp á daginn með því að blæða sem tákn um blóð píslarvottanna,“ skrifaði Esen en Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, talar iðulega um þá sem börðust gegn valdaránstilraun hersins sem píslarvotta. Samkvæmt skipuleggjendum keppninnar komu ummæli Esen ekki í ljós fyrr en eftir keppnina sem haldin var í Istanbúl í gær. Esen hefur sjálf beðist afsökuanar á ummælunum á samfélagsmiðlum sínum. „Ég vil segja að sem 18 ára stúlka var færslunni ekki ætlað að vera pólitísk,“ skrifaði Esen. „Ég var alin upp við það að bera virðingu fyrir heimalandi mínu og þjóð“ sagði hún og baðst afsökunar á því að orð hennar hefðu verið mistúlkuð. Asli Sumen sem var í öðru sæti keppninnar mun nú taka við skyldum Ungfrú Tyrklands.
Mest lesið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Bylgjan í beinni frá Götubitahátíðinni Lífið samstarf Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Fleiri fréttir Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Sjá meira