Glamour

Forsetafrúin Kim Kardashian West á forsíðu Interview Magazine

Ritstjórn skrifar
Glamour/Skjáskot, Steven Klein
Mæðgurnar Kim Kardashian West og North West eru saman framan á Interview Magazine, og virðist sem fyrrum forsetafrúin Jackie Kennedy sé fyrirmyndin. Steven Klein tók myndirnar. 

Kim hefur gert ýmislegt fyrir myndavélina en þessar myndir eru nokkuð frábrugðar því sem við höfum séð. Fyrirsögn myndaþáttarins er ,,Hin nýja forsetafrú," og er stíliseringin mikið í anda sjöunda áratugarins, þar sem Kim er með uppsett hár, perlur í hárinu og með hvíta hanska. Ljósmyndarinn Steven Klein sagði þessar myndir vera tákn um styrkleika og sjálfsvirðingu, og að fegurð Kim væri bæði gamaldags en einnig nútímaleg. 

Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa á Twitter og hafa mjög margir tjáð sig um myndaþáttinn, en fólk virðist samt alltaf hafa miklar skoðanir á öllu sem Kim gerir. 

Kim segir sjálf að þessi myndataka hafi verið öðruvísi en allar sem hún hefur tekið þátt í en að hún sé virkilega ánægð með útkomuna.








×