Lífið

Allir græða á veganisma

Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar
Katrín Sigríður Júlíu Steingrímsdóttir gerðist vegan á einni nóttu eftir að hafa horft á áhrifamikla heimildarmynd.
Katrín Sigríður Júlíu Steingrímsdóttir gerðist vegan á einni nóttu eftir að hafa horft á áhrifamikla heimildarmynd. Visir/Eyþór
Heimurinn breytist á ógnarhraða og unga kynslóðin leiðir breytingarnar á öllum sviðum samfélagsins. Matarmenningin er allt önnur í dag en fyrir áratug.

Áður var það kannski helst „skrýtna“ frænkan eða frændinn sem lærði í Svíþjóð á áttunda áratugnum sem bruggaði drykkinn Kombucha sem nú er selt í öllum stærri matvöruverslunum sem sjálfsögð heilsubót. Og kunni að elda úr linsubaunum og borðaði spírur. Og möndlumjólk? Það er ekki svo langt síðan við höfðum ekki hugmynd um að það væri svona léttilega hægt að útbúa mjólk úr möndlum. Á kaffihúsum í dag er oft hægt að velja á milli margra tegunda mjólkur úr jurtaríkinu. Mörgum finnst sem lífstílsbreytingarnar sem eru að verða nú séu endurkoma hippaáranna. Að hippakynslóðin hafi með þrautseigju náð boðskap sínum í gegn.

Að mataræðisbreytingarnar séu tískubóla sem fylgi tísku og lífsstíl unga fólksins.

Það er auðvelt að hrekja slíkar pælingar. Vegan mataræði er langt í frá tískubóla heldur tengist djúpstæðum breytingum á lífstíl okkar. Breytingum á loftslagi og umhverfi. Óumflýjanlegum framtíðarskorti á hráefni í heiminum vegna fólksfjölgunar.

Varð vegan eftir að hafa horft á heimildamynd 



Katrín Júlíu Steingrímsdóttir hefur verið vegan í rúmt ár. „Það gerðist svolítið á einni nóttu,“ segir hún. „Mér fannst bara ekkert annað koma til greina eftir að ég horfði á Cowspiracy, heimildamynd um hvernig dýraræktun til manneldis væri að eyðilegga jörðina okkar mun meira en samgöngur gera. Fannst þetta bara rökréttast í stöðunni; sleppa því að drepa dýr, eyðileggja jörðina og líkama minn í leiðinni.

Katrín dvaldi í sveit fyrstu mánuðina eftir að hún varð vegan þar sem úrvalið var lítið. Hún hafði ekki færi á búðarferð nema einu sinni í mánuði.

„Nauðsynjar gat ég þó keypt. Á þessum tíma fylgdist ég ekki mikið með þróun mála í Reykjavík. Ég kom aftur suður í Reykjavík þremur mánuðum síðar þar sem úrvalið var svipað og það er núna. Það gefur þó auga leið að áður en ég varð vegan var úrvalið mun minna en núna. Ætli ég hafi bara ekki hitt á réttan tíma ef svo má orða það.“





Heimildamyndin Cowspiracy hefur haft áhrif á marga.
Veitingakeðjur hafa tekið við sér

Henni finnst úrval af veganfæði mega batna.

„Það þarf að batna sumsstaðar. Flestir staðir og þá helst veitingakeðjur hafa tekið mikið við sér og bjóða upp á annað en franskar og kál. Það eru samt ennþá staðir sem eru fastir þar.“

Katrín segir ungt fólk upplýst og noti í meira mæli netið til upplýsingaöflunar. Það geri að að verkum að það velji frekar veganlífstíl.

„Ungt fólk er eflaust sá aldurshópur sem notar internetið hvað mest í upplýsinga- og afþreygingarskyni. Í dag eru fullt af kvikmyndum, fræðigreinum o.fl. sem fjalla um matarvenjur, dýravernd og fleira sem snertir þá á veganisma. Ég held að fjölda þeirra megi rekja til þess að þau hafi rekist á slíkt efni og tekið það til sín.“

Katrín nefnir að veganismi sé ekki laus við skaðleg umhverfisáhrif en sé þó mikilvægt tæki í baráttunni gegn loftlagsbreytingum.

„Veganismi er ekki gallalaus hvað umhverfisvernd varðar, þetta er t.a.m ekki plastlauslífstíll og það er ekki beint eins og ég sé með baunaræktun í garðinum mínum. En hann tekur hinsvegar stærsta vald í hlýnun jarðar, dýraræktun, út úr jöfnunni. Ég myndi halda að það hefði ágætis þýðingu.

Fyrir mér hefur þetta einfalda þýðingu; hlustaðu á skynsemina og leggðu þrjóskuna til hliðar í smá stund. Allir geta grætt á veganisma.“

Fólk hættir fljótt að suða

Sumir velja að borða ákveðnar dýraafurðir en borða mestmegnis grænmetisfæði. Eru pescetarian og octovegetarian og svo framvegis. Þá velja sumir að borða bara ávexti eða hráfæði. Finnst Katrínu fólk upplýstara en áður og reyna að velja að borða dýraafurðir I hófi?

„Já og vissulega er alltaf jákvætt þegar fólk upplýsist aðeins og reynir að hugsa betur út í matinn sem það borðar. Sumir þurfa eitt skref í einu á meðan aðrir stökkva beint út í laugina. Við erum öll misjöfn og vonandi festist fólk ekki á miðri leið og ákveður að stoppa þar.“

Fólk reynir stundum að sannfæra hana um annan lífsstíl og telji hana varla geta fengið öll nauðsynleg næringarefni úr fæðunni.

„Oftast hlæ ég bara og bendi þeim á hvers vegna það sem þau hafa að segja um t.d. vítamínskort sé bull - enda fæ ég öll þau vítamín sem ég þarf í fæðunni minni. Oft hættir fólk að suða í manni eftir 2 eða 3 skipti.“

Sleppir þú líka dýraafurðum þegar kemur að fatnaði og húsgögnum og slíku?

„Já en ég henti samt engu sem ég átti fyrir. Það hefði verið heimskulegt og ekkert sérstaklega skynsamlegt að henda út góðum hlutum á meðan þeir eru ennþá nothæfir. Hef ekkert keypt síðan ég varð vegan sem inniheldur dýraafurðir.“

Veganlíf Katrínar

Hverjir eru uppáhaldsréttir þínir?



Elska vegan falafelið á Mandi og allt með sveppum í aðalhlutverki.

Hvað færðu þér í morgunmat?



Brauð með rjómaosti sem er búinn til úr plöntum og einhvern safa með.

Hvað færðu þér fyrir æfingu og eftir æfingu?



Telst tiltekt sem æfing?

Ertu með einhver skotheld tips?



Gefðu nýjum mat tækifæri og svörtu og rauðu hausskúpurnar í nammibarunum eru vegan!







Hulda B. Waage kraftlyftingarkona segir aldrei erfitt að fylgja hjartanu.
Ekki erfitt að gera það sem hjartað segir manni



Hulda B. Waage kraftlyftingarkona hefur verið vegan í rúm þrjú ár. Hún byrjaði þó að sniðganga kjöt á unglingsárum. „Ég prófaði held ég allar útgáfur á "grænmetisrófinu,"segir Hulda. „Þegar öllu er á botninn hvolft þá er ég mjög viðkvæm sál og ma ekkert aumt sjá. Ég gæti aldrei endað líf nokkurs og mér verður illt við tilhugsunina að einhverjum líði illa,“ segir Hulda spurð um ástæður þess að hún varð vegan.

Henni finnst úrval í verslunum af sérvöru og þjónusta á veitingastöðum hafa batnað til muna. „Fleiri og fleiri ákveða að sniðganga dýraafurðir. Við erum að stefna í rétta átt. Það þurfa bara fleiri að kveikja á perunni. Úrvalið er mjög gott, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Það má allt bæta. Nú eru til staðgenglar fyrir alla fæðu að ég held. Algjör lúxus en á sama tíma kannski svolítill óþarfi.“

Hulda segir vegan mataræði ekki erfitt. „Það verður seint talið erfitt að vilja lifa á ákveðinn hátt, erfiði er bara viðhorf.“

Sífellt fleiri kjósa að vera vegan í dag, sérstaklega yngra fólk. Hvers vegna heldur þú að það sé?

„Ég hugsa að umræðan sé meiri og því auðveldara að afla sér upplýsinga. Mjög gott að ungt fólk hafi aðgang að upplýsingum og hafi vitneskju til þess að geta mótað sína neyslu.“

Hulda segir margar stefnur í gangi hvað varðar veganisma. Það sem sé einkennandi fyrir þennan hóp sé aukin meðvitund. Henni finnst oft vanta meiri vilja í að breyta til batnaðar. „Mér finnst vanta svolítið í fólk almennt að það geri hluti og lifi á ákveðinn hátt með það eina að vopni að það vill og ætlar. Ég heyri svo oft fólk segja "mig langar svo að gera/ vera..." en svo virðist það ekki nægja til þess að bara gera hlutina. Það stoppar allt á að það sé svo erfitt. Það er erfitt að missa útlim eða berjast við sjúkdóm það er ekki erfitt að gera það sem hjartað segir manni,“segir Hulda.

Veganlíf Huldu 



Hverjir eru uppáhaldsréttir þínir?



„Ég er svo einföld að þetta er erfið spurning. Réttir eða ekki en svona þrennt uppáhalds matarkyns er hafragrautur, bláberjasmoothieinn minn og kombuchað sem ég fæ hjá Gló.“

Hvað færðu þér í morgunmat?



„Hafragraut og bláberjasmoothie, bæði eða annaðhvort.“

Hvað færðu þér fyrir æfingu og eftir æfingu?



„Fyrir seinni parts æfingu passa ég að borða mat sem hefur flókin kolvetni eins og baunir, sætar kartöflur eða quinoa og vel af grænmeti. Fyrir morgunæfingarnar borða ég ekkert en er alltaf með vatn. Eftir æfingu fæ ég mér mat sem hefur einföld kolvetni eins og ávöxt.“

Kombucha er hollur gerjaður drykkur sem á að hafa góð áhrif á þarmaflóruna.
Veganlíf Huldu 



Hverjir eru uppáhaldsréttir þínir?



„Ég er svo einföld að þetta er erfið spurning. Réttir eða ekki en svona þrennt uppáhalds matarkyns er hafragrautur, bláberjasmoothieinn minn og kombuchað sem ég fæ hjá Gló.“

Hvað færðu þér í morgunmat?



„Hafragraut og bláberjasmoothie, bæði eða annaðhvort.“

Hvað færðu þér fyrir æfingu og eftir æfingu?



„Fyrir seinni parts æfingu passa ég að borða mat sem hefur flókin kolvetni eins og baunir, sætar kartöflur eða quinoa og vel af grænmeti. Fyrir morgunæfingarnar borða ég ekkert en er alltaf með vatn. Eftir æfingu fæ ég mér mat sem hefur einföld kolvetni eins og ávöxt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×