Markametið er í hættu 19. ágúst 2017 10:00
Fótbolti 19. ágúst 1978 varð Skagamaðurinn Pétur Pétursson fyrstur til að skora 19 mörk í efstu deild á Íslandi þegar hann skoraði tvö mörk á lokamínútum í leik í Keflavík og bætti með því markamet Hermanns Gunnarssonar. Nú 39 árum síðar stendur metið hans enn. Þrír hafa reyndar bæst í 19 marka klúbbinn en það eru liðnir tveir áratugir síðan að sá síðasti fékk inngöngu. Fjórir bónusleikir hjálpuðu ekki mikið til. Tíu ár eru síðan að fjölgað var um tvö lið og fyrstu níu tímabilin í tólf liða deild ógnaði enginn markametinu fyrir alvöru en tíunda sumarið gætið orðið sögulegt. Skytturnar fjórar, Pétur, Guðmundur Torfason, Þórður Guðjónsson og Tryggvi Guðmundsson, hafa hingað til ekki þurft að hafa miklar áhyggjur af því að þær væru að fara missa metið sitt. Nú er aftur á móti heitasti maður sumarsins að gera sig líklegan til að komast í 19 marka klúbbinn eða jafnvel stofna nýjan tuttugu marka klúbb. Grindvíkingurinn Andri Rúnar Bjarnason hefur skorað 14 mörk í 15 leikjum í Pepsi-deildinni í sumar og hann á enn eftir sjö leiki. Fréttablaðið skoðaði hversu mörg mörk meðlimir 19 marka klúbbsins voru búnir að skora þegar sjö leikir voru eftir af mótinu og þá fyrst fær maður trú á því að metið sé í hættu. Sex marka forskot á tvo Það er sláandi að sjá hversu langt methafarnir fjórir voru langt á eftir Andra Rúnari á þessum tímapunkti í mótinu. Framarinn Guðmundur Torfason var búinn að skora langflest mörk af þessum fjórum en var engu að síður með þremur mörkum færra en Andri Rúnar þegar sjö leikir voru eftir af mótinu 1986. Þeir Pétur Pétursson og Tryggvi Guðmundsson voru sex mörkum á eftir og Þórð Guðjónsson vantaði fimm mörk upp á að vera búinn að skora jafnmörg mörk og Andri Rúnar þegar sjö leikir voru eftir. Annað sem ýtir undir væntingarnar er að Andri Rúnar er kominn aftur á mikinn skrið en hann er með fjögur mörk í síðustu þremur leikjum. Hann lagði þó grunninn að góðri stöðu þegar hann skoraði 8 mörk í fimm leikjum í maílok og júní. Það er óhætt að segja að Andri Rúnar haldi uppi sóknarleik Grindavíkurliðsins en hann hefur skorað 67 prósent marka liðsins í Pepsi-deildinni í sumar. Andri Rúnar hefur enn fremur skorað 13 af 16 mörkum liðsins í síðustu tólf leikjum. Þrír erfiðir leikir Næsti leikur Andra Rúnars Bjarnasonar og félaga í Grindavík er á móti toppliði Vals á Hlíðarenda í kvöld. Andri Rúnar skoraði eina markið í fyrri leik liðanna en mun í kvöld glíma við tvo af bestu miðvörðum deildarinnar. Við taka síðan leikir gegn KR og FH og má búast við því að þessir þrír leikir á móti þremur af sterkustu liðum deildarinnar gefi best til kynna hvort Andri Rúnar nái markametinu í sumar. ooj@frettabladid.is
Mest lesið Ekki léttvæg ákvörðun að hætta við bardagann Sport Ronaldo hlustaði ekki á meðan aðrir vildu Ancelotti eða Zidane Enski boltinn Sjáðu fljótasta mark í sögu EM og endurkomu Ítalíu Fótbolti Ronaldinho hættur að horfa á Brasilíu Fótbolti Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Enski boltinn Utan vallar: Tuttugu ár frá besta EM allra tíma Fótbolti DeChambeau leiðir með þremur fyrir lokadaginn Golf Bjarni lætur af störfum hjá KR Fótbolti Dagskráin í dag: Besta deild kvenna, Opna bandaríska og hafnabolti Sport Yngstur í sögunni: Fagnaði áfanganum með stoðsendingu Fótbolti Fleiri fréttir Ronaldo hlustaði ekki á meðan aðrir vildu Ancelotti eða Zidane Utan vallar: Tuttugu ár frá besta EM allra tíma Ekki léttvæg ákvörðun að hætta við bardagann Ronaldinho hættur að horfa á Brasilíu DeChambeau leiðir með þremur fyrir lokadaginn Dagskráin í dag: Besta deild kvenna, Opna bandaríska og hafnabolti Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Sjáðu fljótasta mark í sögu EM og endurkomu Ítalíu Hundraðasta mark Söndru Maríu kom í Garðabænum Ítalía kom til baka gegn Albaníu Spánverjar skoruðu mörkin Yngstur í sögunni: Fagnaði áfanganum með stoðsendingu Uppgjör: Stjarnan – Þór/KA 1-4 | Sandra María hættir ekki að skora Spánverjar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Sjáðu mörkin: Sviss byrjar af krafti „Það er erfitt að koma hingað og sækja stig“ Uppgjör: FH varði forskotið og tók öll stigin Emilía Kiær danskur meistari með Nordsjælland Þorleifur áfram með Grindavík Öruggur sigur Sviss í fyrsta leik Brjálað stuð og blíða á pæjumótinu Cole Palmer skapaði óvart jarmveislu á Twitter Vistaskipti Ísaks til Düsseldorf staðfest formlega Kevin Campbell látinn eftir stutt veikindi Matija Sarkic látinn aðeins 26 ára gamall Åberg með eins höggs forskot Mavericks knúðu fram annan leik með krafti Hélt að hásinin hefði slitnað: „Fékk svona tilfinningu eins og einhver hefði sparkað aftan í mig“ DreamHack Summer 2024 Ratcliffe ræðst í fimmtíu milljóna punda endurbætur á Carrington æfingasvæðinu Sjá meira