Setja hátíðnihljóð yfir Trump Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 6. ágúst 2017 10:47 Ilana Glazer t.v. og Abby Jacobson t.h. þurftu að endurskrifa handritið að fjórðu seríu eftir úrslit forsetakosninganna. Vísir/getty
Gamanleikkonurnar Abby Jakobson og Ilana Glazer setja hátíðnihljóð yfir nafn Donalds Trumps í hvert skipti sem hann er nefndur á nafn í glænýrri seríu af Broad City sem væntanleg er á skjáinn. Vanalega er sá háttur hafður á hljóðmerkið sé notað til að þurrka út klúr og óæskileg orð í sjónvarpi en vinkonunum í Broad City finnst full ástæða til að þurrka út nafn forsetans. „Það er ekkert pláss fyrir appelsínuna í útsendingu,“ segir Ilana Glazer um þá ákvörðun að notast við hátíðnihljóðið. Aðdáendur Broad City eru sérstaklega spenntir fyrir því hvernig Abby og Ilana ætla að tækla Donald Trump.Vísir/gettyÞáttaröðin Broad City snýr aftur á skjáinn á Comedy Central 23. ágúst. Umrædd fjórða sería gamanþáttarins fjallar um bestu vinkonurnar Abby og Ilönu og hversdagsleg en bráðfyndin ævintýri þeirra en í þetta skiptið er sögusviðið Ameríka Donalds Trump.Þegar Abby og Ilana skrifuðu handritið að fjórðu seríunni bjuggust þær fastlega við að Hillary Clinton yrði næsti forseti Bandaríkjanna og skrifuðu þær handritið með það fyrir augum. Vegna anna og annarra verkefna þurftu þær að gera hlé á handritaskrifum en í millitíðinni varð Donald Trump kjörinn forseti. Abby og Ilana neyddust til þess að endurskrifa handritið að mestu. Þetta kemur fram á USA Today.Aðdáendur Broad City mega því eiga von á að sjá nýja og pólitíska hlið á grínistunum.
Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Fundu ástina á Domino's Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“