Gunnar og Sunna á leið í stríð 15. júlí 2017 09:00 GLASGOW, SCOTLAND - JULY 13: Gunnar Nelson of Iceland interacts with media during the UFC Ultimate Media Day at the Crowne Plaza Glasgow on July 13, 2017 in Glasgow, Scotland. (Photo by Josh Hedges/Zuffa LLC/Zuffa LLC via Getty Images)
Mjölnisfólk á eftir að naga neglurnar alla helgina því þeirra atvinnumenn á stóra sviðinu, Gunnar Nelson og Sunna Rannveig Davíðsdóttir, verða í eldlínunni. Á laugardagskvöld berst Sunna, sem kallar sig Tsunami, við hina bandarísku Kelly D’Angelo í Kansas og á sunnudeginum er komið að Gunnari er hann mætir Argentínumanninum Santiago Ponzinibbio í Glasgow. Andstæðingur Sunnu er þrítug og rétt eins og Sunna þá þekkir hún það ekki að tapa. Hún á fimm boxbardaga að baki sem hún vann alla og hefur einnig unnið alla MMA-bardagana sína sem eru orðnir fimm. Síðustu tveir eru atvinnumannabardagar. Sunna hefur unnið báða sína bardaga hjá Invicta-bardagasambandinu en þetta verður frumraun D’Angelo hjá því sambandi en ferill hennar gefur til kynna að hún sé grjóthörð og kunni ýmislegt fyrir sér. Sérstaklega í hnefaleikum. Þetta er áhugaverð kona sem starfar sem sjúkraliði og slökkviliðskona og þar kynntist hún boxinu og síðar MMA. Hún kemur frá Missouri og ætti því að vera með fjölda fólks á bak við sig á bardagakvöldinu. Sjálf sagði hún reyndar í viðtali við MMAfréttir.is að hún ætti von á vinum og ættingjum á kvöldið stóra en væri ekki að búast við neinum heimavelli þó að hún sé frá þessum slóðum. Sunna væri orðin vel þekkt í Invicta, sem og vinsæl, og því myndi Sunna klárlega fá góðan stuðning líka úr stúkunni. Sunna okkar hefur vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína hjá Invicta hingað til og bardagar hennar verið rosalegir. Hún vann fyrst sannfærandi sigur á stigum gegn Ashley Greenway í september í fyrra og fylgdi því eftir með sigri á Mallory Martin í maí. Það var jafn bardagi sem valinn var bardagi kvöldsins. Okkar kona sýndi þá ótrúlegt ljónshjarta sem hefur fleytt henni langt. Það er ekkert launungarmál að Sunna stefnir á að komast inn um dyrnar hjá UFC sem er stærsta bardagasamband heims. Leiðin þangað úr Invicta þarf ekkert að vera rosalega löng ef fólk stendur sig vel. Haraldur Dean Nelson hjá Mjölni er með sterk tengsl innan UFC og hefur þegar verið í sambandi við fólk þar vegna Sunnu. Fari svo að hún sýni allar sínar bestu hliðar á nýjan leik og klári D’Angelo með stæl gæti vel farið svo að UFC opni dyrnar og hleypi henni inn. Það er því til mikils að vinna fyrir Sunnu í Kansas City á laugardagskvöld. Gunnar Nelson er löngu kominn inn fyrir dyrnar hjá UFC og er í áttunda sæti á styrkleikalista veltivigtarinnar. Hann fær þann heiður að vera aðalnúmerið á bardagakvöldinu í Glasgow á sunnudag. Það segir ýmislegt um sterka stöðu Gunnars innan UFC. Þetta er í annað sinn sem Gunnar er í aðalbardaga kvölds hjá UFC en hann var það einnig er hann barðist við Rick Story í Stokkhólmi í október árið 2014. Að hann sé í aðalbardaga kvölds þýðir að bardagi hans sé fimm lotur en ekki þrjár eins og allir hinir bardagarnir. Gunnar fór í fimm lotur gegn Story á sínum tíma og varð þá að sætta sig við sitt fyrsta tap í búrinu. Hann hefur lært mikið á þeim bardaga og sneri tvíefldur til baka. Ef hann lendir aftur í því að þurfa að fara í fimm lotur mun hann ráða mun betur við það en hann gerði gegn Story. Hann er þess utan í betra formi í dag. Andstæðingur Gunnars að þessu sinni er grjótharður Argentínumaður. Hann hefur unnið 24 bardaga en aðeins tapað þremur. Þrettán af sigrum Ponzinibbio hafa komið með rothöggi. Hann er mikill stríðsmaður sem þarf að hafa mikið fyrir að vinna. Hann virðist eflast við hverja raun en hefur aldrei lent í eins hæfileikaríkum bardagamanni og Gunnari. Þetta verður níundi bardagi Ponzinibbio í UFC en hann hefur tapað tveimur af átta bardögunum þar hingað til. Hann er aftur á móti á mikilli siglingu og hefur unnið fjóra bardaga í röð. Argentínumaðurinn mun því mæta með sjálfstraustið í botni og kassann úti gegn Gunnari. Þessi bardagi er nefnilega risatækifæri fyrir hann að blanda sér í umræðuna um þá bestu í vigtinni. Hann er sem stendur í fjórtánda sæti á styrkleikalistanum eftir að hafa tapað síðast fyrir rúmum tveimur árum. Þó að Gunnar hafi mátt sætta sig við tvö töp hjá UFC til þessa þá hafa markmið hans alls ekkert breyst. Hann ætlar sér að verða heimsmeistari hjá UFC og hefur tekið neikvæðu reynsluna af töpunum og snúið þeim upp í jákvæða reynslu sem hjálpar honum að komast þangað sem hann ætlar sér. Leiðin á toppinn hefur verið örlítið grýttari en hann ætlaði sér en stígurinn þangað er í sjónmáli. Gunnar barðist aðeins þrisvar á árunum 2015 og 2016. Hann veit að hann þarf að berjast oftar og er að vinna í því í ár. Að öllum líkindum mun hann ná þremur bardögum á þessu ári. Því miður hafa hlutirnir ekki spilast eins vel fyrir hann og hann ætlaði sér. Í nóvember á síðasta ári varð hann að draga sig út úr bardaga gegn Kóreubúanum Dong Hyun-Kim en sigur þar hefði gefið honum enn stærri bardaga í kjölfarið. Flestir af þeim sem eru fyrir ofan hann hafa annaðhvort verið meiddir eða bókaðir í aðra bardaga á þessu ári. Gunnar þarf því að slökkva á sprækum strákum sem eru á uppleið á meðan hann bíður eftir að mæta hákörlunum. Hann afgreiddi Alan Jouban smekklega í mars og ætlar sér að senda enn sterkari skilaboð með því að klára Ponzinibbio. Auðvitað er miklu meira undir hjá Gunnari sem er eðlilega að taka talsverða áhættu með því að berjast við gaura sem eru fyrir neðan hann á styrkleikalistanum. Hann er aftur á móti að sýna að hann óttast ekki áskoranir og ef allt fer að óskum á morgun þá geta forráðamenn UFC ekki annað en gefið honum næst bardaga gegn einhverjum af þeim bestu. Þá er leiðin í heimsmeistaratitilinn sem Gunnar horfir á ekkert svo löng þó að steinarnir sem þarf að henda af stígnum séu ívið stærri en þeir sem hann hefur verið að velta við á síðustu árum.
Mest lesið Fyrsta súperstjarna Íslands stendur á tímamótum Lífið Feginn að losna við kvíðann sem fylgdi drykkjunni Lífið Allt um brjóstastækkun Simone Biles Lífið Breyta reglum um atkvæðagreiðslu og kynningu laga í Eurovision Lífið Vonlaust í víkinni Gagnrýni „Sjónvarpssonur“ John Travolta látinn Lífið Var úthúðuð af skipuleggjanda en sigraði í Ungfrú alheimi Lífið Fimm fáránlegar biðraðir Íslendinga Menning Grunaði alltaf að hann væri ekki sonur föður síns Lífið Helga Margrét tekur við af Króla Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Eyddu sleikjufærslum spjallmennis: „Ég er feitur fæðingarhálfviti“ Bjóða til sögulegrar tölvuleikjaveislu Hrátt og sjarmerandi einbýlishús listapars í Höfnum Sjáðu nýtt klifurhús fyrir norðan: Frá Hjalteyri yfir til Akureyrar Feginn að losna við kvíðann sem fylgdi drykkjunni Allt um brjóstastækkun Simone Biles „Skref í rétta átt“ en ekki útséð um þátttöku Íslands Breyta reglum um atkvæðagreiðslu og kynningu laga í Eurovision Samfélagsmiðlastjörnur máluðu Akureyri rauða Þessi hús og lóðir hlutu fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar Var úthúðuð af skipuleggjanda en sigraði í Ungfrú alheimi Fyrsta súperstjarna Íslands stendur á tímamótum „Sjónvarpssonur“ John Travolta látinn Tilkynntu hver jólagjöf ársins væri Halla átti ánægjulegan fund með Karli Bretakonungi Edwald-feðgar kaupa hlið við hlið Grunaði alltaf að hann væri ekki sonur föður síns Óhuggulegt fall fegurðardrottningar Sonur tónlistarparsins fæddur og nefndur Óttaðist um líf sitt: „Það var erfiðasti dagur lífs míns“ Játaði sig sigraða: „Mér fannst það algjört tabú áður“ Mobb Deep kemur fram í KR-höllinni í mars Nýsloppin við vinstra vókið þegar það hægra mætti Ætluðu að taka þakið í gegn en urðu óvænt að byrja á kjallaranum Opnar sig um dulið fósturlát RAX hlýtur verðlaun Konunglega ljósmyndafélagsins Æskuheimili Bríetar til sölu: „Epic staður til að alast upp“ Landsliðið réðst á Fannar: „Þó að þið gerið ekkert annað en að tapa“ „Ég elska þig í dag eins og ég gerði þá“ Innlit í ævintýralega baðlónið Laugarás Lagoon Sjá meira