Tilnefndar til verðlauna Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 22. júní 2017 09:30 Rakel og Elva Björk hyggja á frekari vöruþróun úr hráefni sem fellur til við aðra framleiðslu, svo sem úr súkkulaði, byggi og berjahrati.
Þær Rakel Garðarsdóttir og Elva Björk Barkardóttir hafa verið tilnefndar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs fyrir líkamsskrúbb úr kaffikorgi. Það er frábært að fá tilnefningu til þessara verðlauna og viðurkenning. Þau verða veitt í nóvember við hátíðlega athöfn í Finnlandi og er verðlaunaféð fimm milljónir,“ segir Rakel Garðarsdóttir en þær Elva Björk Barkardóttir hafa verið tilnefndar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs. Tilnefninguna hljóta þær fyrir líkamsskrúbb sem þær framleiða úr endurnýttum kaffikorgi, þara, sjávarsalti og olíum. Skrúbburinn er fyrsta varan í snyrtivörulínunni Verandi og byggir á hugmyndafræði um minni sóun og umhverfisvitund. „Það er miklu sóað í heiminum í dag, af öllu. Ísland er þar engin undantekning. Almennt finnst mér hráefni og afurðir illa nýtt,“ segir Rakel. Hún hafi því stofnað samtökin Vakandi til að vekja athygli á matarsóun og í spjalli yfir kaffibolla hafi þær Elva fengið hugmyndina að Verandi líkamsskrúbbnum.Mikil virkni í korginum „Kaffi kemur langa vegalend til Íslands og þegar búið er að hella einu sinni upp á espresso er korginum hent. Samt er um það bil 90 prósent virkni enn þá í kaffikorginum. Ég tók einnig eftir því að korgurinn fer ekki alls staðar í lífrænan úrgang. Á mörgum stöðum er honum hent og endar í landfyllingu. Það tekur bæði upp land og breytist þar í metangas. Ég hafði sjálf notað kaffikorginn heima, bæði í beðin og sem sturtuskrúbb. Þurrkaði hann einfaldlega og notaði án olía. Okkur Elvu langaði hins vegar að gera þetta dálítið fínt og notum þara, sjávarsalt og olíur í skrúbbinn. Við fengum inni hjá Matís og helltum okkur út í þróunarvinnu,“ útskýrir Rakel.Lífrænt ræktað Korginn fá þær frá veitingastað IKEA, þar sem mikið fellur til daglega. Umhverfissjónarmið fyrirtækisins höfðu einnig sitt að segja. „Við völdum að nota kaffið frá IKEA þar sem þar er einungis notað lífrænt ræktað kaffi og IKEA stundar einnig sanngjarna viðskiptahætti (Fair trade). Samstarfið við IKEA er frábært og í raun kom mér á óvart hvað kaffið er mikil gæðavara frá þeim,“ segir Rakel.Skaðlaust umhverfinu „Við gerum einnig kröfu um að olíurnar sem við notum í skrúbbinn séu hreinar og komi frá heiðarlegum stöðum. Önnur innihaldsefni eru þari og sjávarsalt en við vinnum út frá þeirri hugmyndafræð að afurðin geti runnið skaðlaust út í sjó. Fjöldi snyrtivara inniheldur mikið magn eiturefna, paraben og plastefni svo dæmi séu tekin og allt rennur þetta út í sjóinn á endanum. Sérstaklega geta skrúbbar innihaldið plastagnir og það eru þá þær sem skrúbba húðina. Fiskar éta plastagnirnar og svo borðum við fiskinn. Það er ekki góð hringrás. Náttúrulegar snyrtivörur verða þó alltaf vinsælli og vinsælli en þá þarf einnig að hafa í huga að ekki sé gengið á auðlindir við framleiðslu þeirra. Það er að mörgu að huga í þessum efnum og ég er viss um að endurnýting á hráefni sem fellur til við aðra framleiðslu, verði þróunin með snyrtivörur, þar sem það er hægt,“ segir Rakel. Þær Elva hafi þegar hafið frekari þróun á fleiri vörum. „Við erum að skoða byggsag frá Vallanesi og erum að þróa úr afgöngum frá Omnom súkkulaði. Þá erum við einnig að skoða þróun á vörum úr bláberja- og krækiberjahrati sem verður til við saftgerð. Þetta gengur allt mjög vel og er ótrúlega gaman. Mjög krefjandi auðvitað, við viljum ekki stytta okkur leið. Þetta snýst um hugsjón, að gera heiminn aðeins betri en hann er og sóa minna.“
Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“