Fasteignir drauma þinna Stefán Þór Hjartarson skrifar 22. júní 2017 10:00 Feitustu bitarnir á fasteignamarkaðnum í dag.
Fasteignabólan er algengasti frasinn þessa dagana og fólk talar ekki um annað en sölu og kaup íbúða, Airbnb og húsnæðislán. Lífið birtir hér á þessum síðum handhægan leiðarvísi fyrir þá sem eru að leita - eða jafnvel þá sem láta sig bara dreyma.VesturbæingurinnRánargata 18 – 220.000.000 Ægifagurt einbýlishús, íslensk steinsteypuklassík sem hefur verið notuð sem skrifstofa en gæti hæglega verið breytt í blautan draum innlitsþáttastjórnandans. Það þarf ekkert nema hjól, vaxjakka og skeggolíu og þetta er „golden.“Djammarinn þyrfti ekki að fara út úr húsi til að taka stöðuna á djamminu.Konungur miðbæjarinsBankastræti 11 – 135.000.000 Ertu djammari með nokkrar kúlur á bankabókinni? Þá liggur beinast við að kaupa sér íbúð í hjarta miðbæjarins þar sem þú bókstaflega sérð hvað margir og hverjir eru í röðinni á B5 – ekki að þú þurfir að bíða í röð þar.Þarna væri hægt að dúndra í nokkur ágæt skáldverk.ListamannavillanBergstaðastræti 81 – 230.000.000 Ef þú ert búin/nn að selja milljónir eintaka af nýju skáldsögunni þinni eða meika það sem listamaður „worldwide“ er þriggja hæða einbýlishús á Bergstaðastræti það sem þú ættir að eyða peningunum þínum í, klárt mál.Það hríslast alveg um mann nostalgían þegar maður sér þetta gullfallega hús.Nostalgíu paradísinFáfnisnes 3 – 125.000.000 Nútíminn er algjört rusl og þá er best að hverfa inn í nostalgíu horfinna tíma (sem líklega voru aldrei til nema í fantasíum). Fegursta hús Reykjavíkur 1973 gæti orkað sem tímavél fyrir retro dýrkandann og ekki er verra að þetta meistarastykki er staðsett í Skerjafirðinum. Já, það er timburklætt gufubað þarna.Skuggahverfið er SVO góðærið hið fyrra.Nýríka pakkSkuggahverfið, Lindargata 39 – 229.000.000 Í höfði hvers bankamanns sem kom „úr engu“ má finna drauminn að búa í íbúð hátt uppi í Skuggahverfinu þar sem lyftan opnast beint inn til þín og algjöra félagslega einangrun er að finna í þakgarðinum. Reyndar er þetta bara næst efsta hæðin – en það ætti að halda manni á tánum.Bankastjóri af gamla skólanum í teinóttum jakkafötum myndi sóma sig vel hérna.BankastjórinnLaugarásvegur 60 – tilboð Það er algjörlega galið að vera bankastjóri og búa ekki á Laugarásvegi. Það er svokallaður „no brainer.“ Þetta stórglæsilega hús er til sölu og það má búast við að fyrir utan það sé sægur Land Cruiser jeppa í klessó upp á hver hreppir gripinn.Arnarnesið er draumurinn, hjá sumum.Íslenski draumurinnKríunes 4 – 124.900.000 Ahh Arnarnesið, þangað sem ríka fólkið fer til að deyja. Þetta risastóra gímald er í boði fyrir einungis rétt yfir hundrað kúlur, sem eru líklega smámunir fyrir alla sem ætla sér að flytja á Arnarnesið. Gallinn er samt sá að ísbíltúr íbúa höfuðborgasvæðisins fer fram fyrir framan húsið þitt en það verður líklega búið að loka Arnarnesinu með hliði innan skamms svo að það ætti að sleppa.
Mest lesið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Íbúar furða sig á horfnu listaverki Menning Stjörnur fjármálabransans komu saman Lífið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Glæsilegar í Gamla Bíói Lífið Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Lífið Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Lífið Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Lífið Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Tónlist Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Menning Fleiri fréttir Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Sjá meira