Kóngar hjóla milli kirkna Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 29. júní 2017 10:15 Kóngarnir Sveinn Sveinsson, Sólmundur Friðriksson, Kristján Jóhannsson, Elmar Þór Hauksson og Arnór B. Vilbergsson, kantor Keflavíkurkirkju og stjórnandi.
Við erum að gera organistanum svolítinn greiða. Hann vantar nýtt orgel, er orðinn þreyttur á að bíða eftir fjárveitingu og notar okkur vini sína,“ segir Kristján Jóhannsson söngvari (ekki samt tenórinn að norðan) um áheitahjólatúr karlakvartettsins Kónganna milli kirkna á Suðurnesjum á laugardaginn. Glöggt mé heyra að Kristján er ekki par hrifinn af áreynslunni sem túrnum fylgir en finnst organistinn alveg ágætur og málefnið enn betra. „Organistinn er okkar fimmti meðlimur og undirleikari – en hann er mikill hjólamaður, tímir ekki að eiga bíl og á hugmyndina að þessu ævintýri. Við höfum því, í okkar indæla skepnuskap, látið hann um að skipuleggja þetta allt saman.“ Hláturinn kraumar í Kristjáni. Hann tekur þó fram að lagt verði upp í kristilegum anda og öllum sé velkomið að slást í för. „Við erum búnir að neyða alla nákomna til að vera með okkur og vonandi koma einhverjir af fúsum og frjálsum vilja,“ tekur hann fram og segir „ábyrga aðila“ hafa farið yfir planið hjá organistanum. „Við komumst fljótt að því að ef við ætluðum að dobla fólk með okkur yrði að gera ráðstafanir. Einn af kóngunum á gamlan hertrukk og ef einhver vill henda hjólinu sínu upp á hann má það, svo erum við líka með strætó. Þannig getur fólk verið með og hvílt sig á milli. Að sjálfsögðu verða þrír af kóngunum að hjóla en við hinir, ábyrgu aðilarnir í hópnum, ætlum að keyra vörubílinn og strætóinn. Svo syngjum við alltaf saman. Það er punkturinn.“ Þið tveir puðið þá ekki eins mikið og hinir, bendir blaðamaður á. „Heldur þú að það sé ekki puð að keyra strætó og halda uppi stuði þar með einhverju liði allan daginn? Svo þarf að róta fyrir þetta lið, setja upp nóturnar og svona,“ segir Kristján og þykist hneykslaður. En hvað eru kirkjurnar margar og hversu löng er vegalengdin? „Þetta er hellingur af kirkjum og enn fleiri kílómetrar. Við byrjum í Keflavík klukkan níu, þaðan verður haldið í Útskálakirkju í Garði, svo út að Hvalsnesi, þaðan út í Hafnir, úr Höfnum í Grindavík, frá Grindavík í Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd, í Innri-Njarðvíkurkirkju, Ytri-Njarðvíkurkirkju og endað í Keflavík. Alls eru þetta 113 kílómetrar og við reiknum með hálftímastoppi á hverjum stað því Kóngarnir syngja alls staðar. Þetta er alveg þokkalega erfitt. Þeir hinir fóru í æfingaferð um daginn, ég var svo heppinn að vera á Akureyri þá, og þeir eru enn að tala um hvað hún hafi verið strembin. En tilgangur ferðarinnar nú er að safna í orgelsjóðinn og þeir sem vilja styðja kóngareiðina geta lagt inn á reikning 0121-15-350005, kt. 680160-5789. Fólk sem sagt heitir á Kóngana – hvort þeir geti hjólað þetta eða ekki – það er sama upphæðin!“
Mest lesið Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Bíó og sjónvarp Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Lífið Vægar viðreynslur en engir pervertar Lífið Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Lífið Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Lífið Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Lífið Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Lífið Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Lífið Fleiri fréttir Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Sjá meira