Matur

Í eldhúsi Evu: Heimalagað ravioli með ricotta- og spínatfyllingu

Eva Laufey skrifar
Þetta ravioli er borið fram með ljúffengu salvíusmjöri.
Þetta ravioli er borið fram með ljúffengu salvíusmjöri. Vísir/Eva Laufey

Í þáttunum Í eldhúsi Evu, sem sýndir eru á Stöð 2 á fimmtudögum, töfra ég fram ýmsar kræsingar. Hér má finna uppskrift að ravioli, ricotta- og spínatfyllingu og salvíusmjöri.

Heimalagað ravioli með ricotta- og spínatfyllingu

Pastadeig

400 g hveiti

3 egg

4 eggjarauður

1 ½ msk ólífuolía

1 tsk salt

Aðferð:

Setjið hveiti á borðflöt og gerið holu í miðjuna á hveitinu, setjið egg, eggjarauður, salt og ólífuolíu í holuna og blandið öllum hráefnum saman með höndum. Hnoðið deigið vel í nokkrar mínútur og sláið deiginu upp í kúlu, setjið plastfilmu yfir kúluna og geymið deigið í kæli í 30 – 40 mínútur.

Skiptið deigið í þrjá hluta og fletjið hvern hluta út, í pastavél eða með kökukefli. Gerið litla hringi í deigið til dæmis með hvítvínsglasi, sprautið fyllingunni ofan á deigið og setjið lok yfir. Lokið deiginu með því að þrýsta vel á endana og gott er að nota gaffal til þess að þrýsta á í lokin. Þannig tryggjum við að fyllingin leki ekki út þegar við sjóðum pastað.

Sjóðið í vel söltu vatni í um það bil fjórar mínútur. Berið strax fram með ljúffengu salvíusmjöri.



Ricotta- og spínatfylling

1 msk ólífuolía

250 g spínat

200 g ricotta ostur

1 hvítlauksrif

1 egg

½ dl rifinn parmesan

2 msk smátt söxuð basilíka

salt og pipar

Aðferð:

Hitið olíu á pönnu, saxið niður spínat og steikið þar til spínatið verður mjúkt í gegn.

Blandið spínatinu saman við ricotta ostinn í skál og bætið pressuðu hvítlauksirif, einu eggi, nýrifnum parmesan og smátt saxaðri basilíku út í og blandið vel saman. Kryddið til með salti og pipar.

Setjið fyllinguna til dæmis í sprautupoka og sprautið á pastadeigið eða notið einfaldlega skeiðar í verkið. Best er að kæla fyllinguna svolítið áður en þið sprautið á pastadeigið.



Salvíusmjör

100 g smjör

fersk salvía, handfylli

Aðferð:

Bræðið smjörið á pönnu, saxið niður ferska salvíu og setjið út á pönnuna. Steikið salvíuna þar til hún er orðin stökk. Berið fyllt ravioli fram með þessu ljúffenga salvíusmjöri og nýrifnum parmesan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×