Glamour

Jennifer Berg: Bruschetta með ricotta og basil pestó

Kæru lesendur, kynnist nýja Glamkokkinum okkar, hinni hæfileikaríku Jennifer Berg. Ástríðukokkur frá blautu barnsbeini, fædd og uppalin í bænum Borås í Svíþjóð, pabbi hennar er sænskur en mamma taílensk. Jennifer elti kærastann til Íslands fyrir tveimur árum og eru þau búsett í vesturbæ Reykjavíkur með franska bolabítnum Knúti.

„Ég hef mikla ástríðu fyrir mat og elska að vera í eldhúsinu að prófa nýja rétti og halda matarboð heima fyrir vini eða fjölskyldu. Einnig hef ég mikinn áhuga á því að taka fínar myndir af matnum sem ég bý til. Þess vegna finnst mér það ekki síður mikilvægt að maturinn líti vel út á disknum en að hann sé góður á bragðið,“ segir Jennifer en hún heldur einnig úti bloggi á Trendnet.is þar sem hægt er að fylgjast með lífi hennar, fyrir framan og aftan myndavélina.

Hér töfrar hún fram æðislegar bruschettur sem smellpassa í sumarveisluna.

Öll hráefnin má nálgast á Boxið, þar sem hægt er að panta vörur beint heim. 

Forrétturinn
Tómat og cantaloupe bruschetta með ricotta og basil pestó

Innihald (fyrir 4)

Basil pestó

Einn pottur af basil, fersku

1 dl rifinn parmesanostur

0,7 dl furuhnetur

2 hvítlauksgeirar

1 1/2 dl ólífuolía

Salt og pipar

Teningasalat

5 tómatar

1/4 cantaloupe-melóna

1 matskeið ólífuolía

Salt og pipar



150 g ricotta-ostur

Gott súrdeigsbrauð eða baguette-brauð

Smjör

Leiðbeiningar:

  1. Basil pestó: Setjið allt hráefni sem þarf fyrir basil pestóið fyrir utan ólífuolíu í matvinnsluvél. Notið pulse-stillinguna á vélinni og ýtið nokkrum sinnum. Notið plastsleif til þess að skrapa niður af hliðum skálarinnar.
  2. Setjið matvinnsluvélina á venjulega stillingu og látið ganga á meðan að þið bætið ólífuolíunni saman við. Mikilvægt er að bæta henni hægt saman við á sama tíma og matvinnsluvélin er í gangi við svo að ólífuolían skilji sig ekki.
  3. Blandið í smá salti og pipar eftir þörf.
  4. Teningasalat: Skerið tómatana og cantaloupe-melónuna í litla teninga. Fjarlægið fræin og safann úr tómatinum, við viljum ekki safann þar sem salatið verður of blautt.
  5. Setjið teningana í skál, bætið við ólífuolíu, smá salti og pipar og blandið saman.
  6. Skerið brauðið í passlegar sneiðar. Smyrjið sneiðarnar með smjöri og steikið á báðum hliðum á pönnu á meðalháum hita.
  7. Leggið ricotta-ostinn á brauðið og toppið með teningasalati og basil pestó. Skvettið yfir smá ólífuolíu og örlitu af salti og pipar.
 






×