AT&T prufar 5G farsímanet Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 5. janúar 2017 08:00 5G farsímanet er væntanlegt. vísir/afp
Samskiptafyrirtækið AT&T tilkynnti í gær að fyrirtækið ætlaði að prófa næstu kynslóð farsímanets, oftast kölluð 5G, í Austin í Texas-ríki á árinu. Verður tæknin notuð til þess að knýja þjónustuna DirecTV Now á heimilum borgarinnar. Fréttastofa CNN greindi frá því að búist væri við því að prufurnar færu fram á fyrri hluta þessa árs. Er þeim ætlað að kanna hversu vel 5Gfarsímaneti tekst að meðhöndla mikla umferð. AT&T hélt því fram í fréttatilkynningu að 5G netið sem fyrirtækið væri að þróa næði allt að fjórtán gígabita hraða á sekúndu, sem er mun meiri hraði en fæst með 4G tengingu. Þessi aukni hraði myndi gera neytendum kleift að horfa á myndbönd í mun betri upplausn án þess að þurfa að bíða eftir því að þau hlaðist inn. Tilkoma 5G farsímanets mun væntanlega koma til með að breyta netnotkun snjallsímaeigenda. Aukið geymslupláss og aukinn hraði opna leiðir fyrir hærri upplausn myndbanda og stærri snjallsímaforrit. Mun því þróunin sem hófst með 4G tengingu halda áfram. Annar samskiptarisi, Verizon, býst einnig við því að hefja prufur á 5G neti á árinu og þá er Google með sams konar áætlanir. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Viðskipti innlent „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Atvinnulíf Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Viðskipti innlent Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Viðskipti innlent „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Dagar Workplace eru taldir Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Sjá meira