Peningalaust samfélag á Stöðvarfirði Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 15. júlí 2017 15:15 Haukur Björgvinsson, Gígja Sara Björnsson og Viktor Pétur Hannesson standa að óvenjulegri bæjarhátíð á Stöðvarfirði þar sem peningar eru einskis virðir. Samsett mynd/Pólar Festival
Skapandi samvinnuhátíð stendur nú yfir á Stöðvarfirði. Pólar festival er matar-, menningar- og tónlistarveisla á sunnanverðum Austfjörðum. Hátíðin er haldin í þriðja sinn og er nokkuð frábrugðin öðrum og hefðbundnari bæjarhátíðum. Þeir sem leggja leið sína austur á bóginn til Stöðvarfjarðar þurfa nefnilega ekki að hafa pening meðferðis. Bækistöðvar hátíðarhaldanna umbreytast í peningalaust samfélag meðan á hátíðinni stendur dagana 14. -16. júlí. Allir viðburðir hátíðarinnar eru ókeypis. Austurland styrkti hátíðina þannig að skipuleggjendum er unnt að koma til móts við bensínkostnað þátttakenda. Auk þess hafa skipuleggjendur opnað Facebooksíðuna Samferða á Pólar þar sem fólki er gert mögulegt að samnýta ferðirnar á staðinn. Sviðið á Pólar festival er komið í sparibúninginn.Pólar festivalMaður er manns gaman Hugmyndafræðin sem liggur að baki bæjarhátíðinni er sú að allir eigi að geta skemmt sér vel án þess að peningar spili þar nokkuð inn í. Gígja Sara Björnsson, ein þriggja skipuleggjenda Pólar, var full innblásturs af „Maður er manns gaman“ hátíðinni sem eitt sinn var haldin á Stöðvarfirði. Gígja skipuleggur hátíðina ásamt þeim Hauki Björgvinssyni og Viktori Pétri Hannessyni.Önnur leið til að kynnast Hátíðargestir geta valið um tvo staði til að gista á, endurgjaldslaust. Þeim stendur til boða að gista í skóla bæjarins og þá geta þeir einnig tjaldað á tjaldsvæðinu. Í gærkvöldi opnuðu Stöðfirðingar hús sín fyrir Pólar-förum og buðu í mat. „Það er ótrúlega gaman. Þetta er önnur leið fyrir fólk til að kynnast,“ segir Gígja. Hún bendir auk þess á að hátíðin sé tilvalinn vettvangur fyrir ólíka hópa að koma saman. „Það er svo gaman því fólk sem til dæmis er ekki að pæla mikið í listamannalaunum hittir allt í einu listamenn. Fólk situr saman til borðs og það er allt öðruvísi samtal sem á sér stað,“ segir Gígja.Þátttakendur á Pólar ýmist veiða fisk sér til matar eða ganga upp í hlíðina til að tína jurtir. Sjálfbærni er skipuleggjendum ofarlega í huga.PÓlar festivalSjálfbærni er hópnum sem stendur að Pólar hugleikin. Hópur gestanna veiðir fisk á meðan aðrir klífa upp brekkuna og tína jurtir sem nýttar verða til að krydda fiskinn. Jurtagangan er undir handleiðslu sérfræðinganna Eyglóar Hilmarsdóttur frá Sóley Organics og Bjarka Sólmundssonar frá Góðgresi. Þau miðla af reynslu sinni og kenna fólki hvað hægt er að tína og í hvað jurtirnar nýtast. „Við eldum síðan öll saman og borðum,“ segir Gígja.Íslenskt grænmeti styrkti hátíðina með ferskum matvælum.Pólar festivalFjölbreytt dagskrá Dagskráin í ár er fjölbreytt og sannarlega þéttofin. Fólki býðst kennsla í flökun, súpugerð og jurtatínslu. Þá verður á dagskrá brúðuleikhús, ljóðaupplestur, fornleifaratleikur, gjörningar, leiklistarsmiðja, tónleikar, flekakeppni, sjósund í sparifötum og hóphugleiðsla svo fátt eitt sé nefnt. Áhersla er lögð á að fólk komi saman og skapi. Gígja segir að þrátt fyrir að þau þrjú; hún, Haukur og Viktor standi að hátíðinni og skipulagningu hennar, séu það gestirnir sem skapi Pólar. „Hátíðargestir taka þátt í að skapa og móta hana. Það er mjög mikil samsköpun,“ segir Gígja.
Mest lesið Berbrjósta og bleikhærðar með byltingu Lífið Fullkominn brúðkaupsdagur í sænskum kastala Lífið Töluðu íslensku við mannhafið Lífið Fárveik í París Lífið Skiptir stærðin raunverulega máli? Lífið Ástin sem eftir er framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Frumsýning á Vísi: Stikla fyrir aðra seríu af Bannað að hlæja Lífið Stígur út fyrir ramma raunveruleikans Tíska og hönnun Einbýlishús með möguleika á makaskiptum Lífið Stórstjörnur í mögulegum ástarþríhyrningi Lífið Fleiri fréttir Töluðu íslensku við mannhafið Hin 93 ára Jóhanna skríður enn um garðinn til að halda honum fínum Fárveik í París Fullkominn brúðkaupsdagur í sænskum kastala Skiptir stærðin raunverulega máli? Berbrjósta og bleikhærðar með byltingu Taylor Swift trúlofuð Taumlaus gleði og stjörnum prýddir tónleikar Stórstjörnur í mögulegum ástarþríhyrningi Leikur Elsu Lund í fatla eftir vondan skell Segir Gleðigönguna ekki vera fyrir sig en styður baráttuna Einbýlishús með möguleika á makaskiptum Sagan þegar Villi Vill ákvað að lagið Söknuður yrði í eigin jarðarför Frumsýning á Vísi: Stikla fyrir aðra seríu af Bannað að hlæja Dansinn dunaði á Menningarnótt Will Smith sakaður um að falsa áhorfendur með gervigreind Lil Nas X laus gegn tryggingu „Blessaður, þú ert með heilaæxli“ Woody Allen segist enginn aðdáandi Pútíns Ein glæsilegasta leikkona landsins selur slotið Lil Nas X ákærður fyrir brot á alríkislögum Ljúffengir hafraklattar með kaffinu Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Hegðun Benedikts kom upp um bónorðið „Hjálpar okkur í að nýta þjónustu sem er ekki til á Íslandi í dag en ætti að vera til“ Fagurkeri selur miðbæjarperlu „Ég trúði því aldrei að ég yrði þessi gaur“ Sonur Rögnu og Árna kominn með nafn Stjörnulífið: Maraþon, brúðkaup og gellugallinn Myndaveisla: Vestri fékk konunglegar móttökur á Ísafirði Sjá meira