Renault Kwid fékk 0 stjörnur í árekstrarprófi NCAP Finnur Thorlacius skrifar 17. maí 2016 14:08 Renault Kwid fékk ekki háa öryggiseinkunn fremur en aðrir bílar sem seldir eru í Indlandi.
Renault framleiðir jepplinginn Kwid fyrir Indlandsmarkað og þar er hann einn af heitustu bílunum á markaði nú um stundir. Þessi bíll var prófaður af öryggisprófunarmiðstöðinni NCAP og skemmst er frá því að segja að þar fékk hann lægstu einkunn sem hægt er að fá, þ.e. enga stjörnu, sem verður að teljast afleitt. Bæði var prófaður Kwid með og án öryggispúða fyrir ökumann, en engu máli virtist skipta hvort bíllinn væri búinn slíkum púða eður ei, því þeir fengu báðir 0 stjörnur. Renault Kwid var einnig prófaður í fyrra og þá fékk hann sömu einkunn, en Renault hefur sagt að til standi að bæta öryggi í bílnum eftir þessa slæmu niðurstöður. Engar öryggisviðmiðanir eru gefnar út af indverskum yfirvöldum en úr því verður bætt á næsta ári og því er hætt við að bílaframleiðendur sem vilja selja bíla þar áfram muni bæta mjög öryggi bíla sinna. Á Indlandi deyr einstaklingur í umferðinni á fjögurra mínútna fresti og hefur forsætisráðherra landsins, Narendra Modi, hug á því að spyrna við fótum með auknum kröfum um öryggi bíla þeirra sem seldir eru í landinu. Fleiri bílar sem seldir eru í Indlandi voru prófaðir samhliða Kwid, þ.e. Suzuki Maruti, Suzuki Eeco, Hyundai Eon og Mahindra Scorpio og fengu þeir líka allir 0 stjörnur hjá NCAP. Renault Kwid kostar, eins og margur annar bíllinn sem seldur er í Indlandi, af lítið, eða um 470.000 krónur. Sala Renault í Indlandi hefur tekið mikið flug að undanförnu og jókst salan þar um 211% í aprílmánuði. Er Renault orðinn þriðja söluhæsta bílafyrirtækið í Indlandi.
Mest lesið Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Innlent Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent Intuens höfðar mál á hendur landlæknisembættinu Innlent „Ég sit ekki hér og hóta því að við séum á leiðinni í verkfall“ Innlent Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Erlent Flugið er líflína milli byggða Grænlands Innlent Bein útsending: Opinn fundur um samgönguáætlun Innlent