Allir klárir í daginn 4. maí 2016 08:00 ,,Sú leið var farin að höfða til starfsmanna vinnustaða og ná þannig upp stemningu meðal fólks,“ segir Sigríður Inga Viggósdóttir, sviðsstjóri almenningsíþróttasviðs ÍSÍ. MYND/ERNIR
Heilsu- og hvatningarverkefnið Hjólað í vinnuna hefst í dag miðvikudag og stendur yfir til þriðjudagsins 24. maí. Sem fyrr er það Íþrótta- og Ólympíusamband Ísland (ÍSÍ) sem stendur fyrir verkefninu sem nú er haldið í fjórtánda sinn. Að sögn Sigríðar Ingu Viggósdóttur, sviðsstjóra almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, hefur meginmarkmið verkefnisins alltaf verið að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. „Þátttakendur eru þá hvattir til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur til og frá vinnu í þær þrjár vikur sem verkefnið stendur yfir. Við sjáum vel hversu stóran þátt það hefur átt í að auka hjólreiðamenningu hér á landi. Þegar verkefnið fór af stað árið 2003 voru þátttakendur 533. Ári síðar fór fjöldinn í 2.510 og hefur hann aukist jafnt og þétt síðan. Metþátttaka var árið 2012 þegar 11.381 manns tóku þátt. Síðan þá hafa margir gert hjólreiðar að lífsstíl og hjóla stóran hluta ársins og eru því ekki að skrá sig sérstaklega í verkefnið.“Hugsað vel um stígana Mörg sveitarfélög hafa líka lagt mikinn metnað í að bæta göngu- og hjólreiðastíga og það ber að hrósa þeim fyrir það segir Sigríður. „Það þarf að huga vel að þessum stígum, sópa þá og moka. Einnig er mikilvægt að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu séu samstíga í því að moka stígana yfir vetrartímann þannig að hjólreiðamenn lendi ekki í að hjóla úr Kópavogi á nýmokuðum stíg og hjóli svo í skafl á bæjarmörkum Reykjavíkur.“ Með því að hjóla eða ganga til og frá vinnu kemur líka hreyfing inn í daglega rútínu fólk. „Samkvæmt ráðleggingum Embættis landlæknis þurfa fullorðnir einstaklingar að hreyfa sig í 30 mínútur á dag. Það ætti því að vera auðvelt að ná þeim markmiðum með því að hjóla eða ganga til og frá vinnu. Svo kemur maður líka bara svo vel vaknaður og hress í vinnuna og er klár í daginn.“Farið yfir reiðhjólin í ró og næði í morgunsárið. MYND/ÍSÍHöfðað til vinnustaða Upphaf verkefnisins má rekja til þess að ÍSÍ langaði að fara af stað með nýtt almenningsverkefni í framhaldi af verkefninu Ísland á iði. Í framhaldi var farið af stað með Hjólað í vinnuna árið 2003. „Sótt var um styrk hjá Alþjóðaólympíuhreyfingunni og vefsíða sett í loftið sem þótti nokkuð merkileg á þeim tíma enda hægt að fara inn á síðuna og skrá þar hreyfingu sína.“ Í upphafi var horft til svipaðra verkefna sem höfðu verið í gangi á Norðurlöndunum. „Sú leið var farin að höfða til starfsmanna vinnustaða og ná þannig upp stemningu meðal fólks. Í gegnum tíðina höfum við fengið margar stórskemmtilegar sögur sem hægt er að lesa á vefnum um upplifun þátttakenda af verkefninu. Auk þess var leitað til Landssamtaka hjólreiðamanna og Fjallareiðhjólaklúbbsins um að vera ráðgefandi í verkefninu. Síðan bættust Hjólreiðafélag Reykjavíkur og Hjólafærni í hópinn. Í kjölfarið af örum vexti hjólreiðaíþróttarinnar á Íslandi var svo Hjólreiðasamband Íslands stofnað sem sérsamband innan ÍSÍ árið 2014.“Kaffitjöldin verða klár. MYND/ÍSÍKaffið á sínum stað Setningahátíðin fer fram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag kl. 8.30 og eru allir velkomnir að koma og hlusta á stutt hvatningaávörp og þiggja léttar veitingar. „Kaffitjöldin verða á sínum stað í vikunni 10. til 13. maí þar sem þátttakendur geta hjólað við og fengið sér rjúkandi heitt kaffi frá Kaffitári, svalandi Kristal frá Ölgerðinni og látið starfsmenn Arnarins fara yfir hjólið. Nánari upplýsingar um tjöldin má finna á hjoladivinnuna.is.“ Á meðan verkefnið stendur yfir verður dregið daglega úr vinningum frá Erninum þar sem allir þeir sem skrá sig til leiks eiga möguleika á vinningi. Auk þess verður dreginn út einn risavinningur á lokadeginum 24. maí, hjól að verðmæti 100.000 kr. Hjólað í vinnuna er á Facebook og einnig á Instagram og Snapchat undir hjoladivinnuna. Myllumerki verkefnisins er #hjoladivinnuna. Nánari upplýsingar má finna á www.hjoladivinnuna.is.
Mest lesið Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Lífið Best klæddu stjörnurnar á Met Gala Tíska og hönnun Hvaða jólasveinn verður næsti forseti? Lífið Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Lífið Smalahundaþjálfun og æsingur í hundum vegna gestagangs Lífið Laufey skein skært á Met Gala Tíska og hönnun „Ég verð að komast til Japan“ Lífið Blóm og plöntur sem þola kuldann Lífið Martröð að fara á útikamar í svartamyrkrinu í Eistlandi sem barn Lífið „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ Tónlist Fleiri fréttir Salurinn aldrei sungið eins mikið með einu lagi Hvaða jólasveinn verður næsti forseti? Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Smalahundaþjálfun og æsingur í hundum vegna gestagangs Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Myndaveisla: Svana töfraði fram suðræna veislu fyrir UAK Myndaveisla: Mari og Guðni féllust í faðma á ögurstundu Stærstu stjörnur rappsins bera hvor annan þungum sökum Baulað á Kim Kardashian þegar Brady var grillaður Söngskóli Sigurðar Demetz með Oklahoma í Borgarleikhúsinu Fleiri svartsýnir á gott gengi Heru Sumarlegir réttir að hætti Jönu Emilíana Torrini kemur fram í Hörpu Búa til barnaefni á íslensku á Youtube Er hægt að skjóta í gegnum byssukúlu? Blóm og plöntur sem þola kuldann Neyslan var orðinn algjör þrældómur Stjörnulífið: Líf og fjör og ástin blómstar Martröð að fara á útikamar í svartamyrkrinu í Eistlandi sem barn Bítið í beinni „Ég verð að komast til Japan“ „Við erum öll byrjendur á einhverjum tímapunkti“ Sonurinn skírður Gylfi og Alexandra eiga von á barni Bernard Hill er látinn Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Tróð upp í Norræna partýinu Sjá meira