Bílar

Chevrolet Bolt bíll ársins hjá Motor Trend

Finnur Thorlacius skrifar
Chevrolet Bolt.
Chevrolet Bolt.
Bandaríska bílatímaritið Motor Trend valdi Chevrolet Bolt rafmagnsbílinn sem bíl ársins 2017. Motor Trend kaus einnig jeppa ársins og þá nafnbót hlaut Mercedes Benz GLC-Class og pallbíll ársins var valinn Ford Super Duty.

Dómnefndarmenn rökstuddu val sitt á Bolt með því að þar færi “game changer” sem sameinaði langa drægni og lágt verð fyrir rafmagnsbíl sem kæmist allt að 400 km á hverri hleðslu. Dómnefndin nefndi einnig að akstureiginleikar bílsins væru einstakir. Nefndu þeir sérstaklega að verð bílsins væri svo gott að bíllinn væri á pari við hefðbundna bíla með brunavél af sömu stærð, en það hefði ekki áður sést með rafmagnsbíl.

Dómnefndin var einnig mjög hrifin af snerpu Bolt bílsins og sagði að hann væri sneggri í hundraðið en Fiat 124 Spider sportbíllinn og aðeins hálfri sekúndu seinni en Volkswagen Golf GTI. Bílarnir sem komust í úrslit hjá Motor Trend voru Audi A4, Cadillac CT6, Chrysler Pacifica, Genesis G90 (frá Hyundai), Jaguar XE, Porsche 911, Tesla Model S 60/75 og Volvo S90. Það var því ekki slorlegur hópur bíla sem Chevrolet Bolt hafði sigur á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×