Það var verið að taka úr konum kynkirtlana Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 9. apríl 2016 09:15 Þrátt fyrir að umræðuefnið á afmælishátíð Samtaka um endómetríósu verði á köflum alvarlegt, eru þau Reynir Tómas Geirsson prófssor og Silja Ástþórsdóttir formaður Samtaka um endómetríósu komin í góða skapið í tilefni hennar. Vísir/Vilhelm „
Samtökin eru tíu ára og okkur fannst full ástæða til að halda upp á þau tímamót, líta yfir sviðið, skoða hvað hefur áunnist, hvað megi betur fara og styrkja systraböndin ásamt fjölskyldu og vinum,“ segir Silja Ástþórsdóttir, formaður Samtaka um endómetríósu, um afmælishátíð samtakanna í Norræna húsinu í dag sem hefst klukkan 13.30. „Reynir Tómas mun rifja upp aðdraganda þess að samtökin voru stofnuð og Auður Smith kvensjúkdómalæknir fjalla um stöðu mála. Margar konur með endómetríósu munu deila sinni reynslu af sjúkdómnum og boðið verður upp á fyrirspurnir í lokin. Inn á milli verða svo tónlistaratriði svo ég á von á að við skemmtum okkur vel saman.“ Reynir Tómas segir endómetríósu hafa verið útskýrða fyrst 1921 en vitneskju um sjúkdóminn hafa aukist hægt eftir það. „Á Íslandi var samt alltaf bara talað um blöðrur á eggjastokkum en oft var gamalt blóð inni í þeim sem minnti á seigfljótandi súkkulaði í útliti. Það var ekkert sniðugt þegar læknar sögðu kannski við konu: Þú varst með súkkulaðiblöðrur inni í þér og ég er búinn að taka þær. Hvað átti hún að halda? Læknar vissu hvað þetta var – á læknamáli – en áttu erfitt með að útskýra það og þekktu ekki eðli sjúkdómsins. Lengst af voru engin góð lyf til en þegar pillan kom fyrir um 50 árum dró hún úr blæðingum og minnkaði einkenni sjúkdómsins og fyrir um 20 árum komu svokölluð andhormón sem gátu bremsað sjúkdóminn svolítið. Oft var ráðið að taka eggjastokka úr konunum, það er eins og að taka eistun úr körlum og það er kallað að gelda – það var verið að taka úr konum kynkirtlana.“ Um 400 til 800 konur eru á hverjum tíma með virk vandamál vegna endómetríósu í samfélaginu, að sögn Reynis Tómasar, en milli tvö til þrú þúsund konur hafa haft meiri eða minni vandamál af sjúkdómnum á sínu frjósemiskeiði. Sumar eru útilokaðar frá vinnu vegna verkja nokkra daga í mánuði og margar glíma við ófrjósemi tengda sjúkdómnum þannig að hann rýrir lífsgæði verulega. „Sjúkdómurinn er drifinn áfram af hormónum og eftir tíðahvörf minnkar estrógenið í líkamanum. Hins vegar standa konur eftir með örvef og skemmdir í kviðarholi sem geta haldið áfram að valda þeim vandræðum. Við erum á pari við aðrar þjóðir þegar kemur að greiningu og meðhöndlun endómetríósu en meðhöndlun er fyrst og fremst á færi sérfræðilækna. Það þarf að koma upplýsingum um sjúkdóminn betur inn í samfélagið og til heilbrigðisyfirvalda og fylgjast með þróuninni í alþjóðlegu samhengi.“ Silja bætir því við að söguskoðun hafi leitt í ljós mörg dæmi um endómetríósu í gegnum aldirnar. „Hún var gjarnan greind sem hystería, talað um að hreinsa þyrfti illa anda úr konunni og þar fram eftir götunum og er mögulega eitt versta dæmi um misgreiningu á sjúkdómi í mannkynssögunni,“ segir hún. „Á Norðurlöndunum eru sérstakar göngudeildir fyrir endókonur og brýn þörf er á slíkri deild hér í tengslum við Kvennadeild Landspítalans. Sjálf þurfti ég að fara sérfræðinga á milli þegar ég fór að taka heilsuna föstum tökum því endómetríósu fylgja margþætt vandamál. Svo þegar konur eru í bráðaverkjakasti hafa þær engin önnur ráð en að fara á bráðamóttökuna þar sem þær geta þurft að bíða lengi og ekki víst hversu vel sá læknir sem þær hitta þekkir sjúkdóminn. Afleiðingin er sú að margar konur veigra sér við að leita sér hjálpar í verkjaköstum.“ Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 9. apríl.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Craig hafi átt hugmyndina að því að drepa hana Bíó og sjónvarp „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Þetta eru allt krakkar í íþróttum“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“