Bílar

Fast 8 bílarnir til sýnis í dag

Finnur Thorlacius skrifar
Íslendingar hafa verið duglegir að ná myndum af tryllitækjunum þegar þau hafa verið flutt milli staða síðustu vikur. Meðal annars hafa þessir flottu Lamborghini Murchielago sést, einnig herbílar, skriðdrekar og fleira.
Íslendingar hafa verið duglegir að ná myndum af tryllitækjunum þegar þau hafa verið flutt milli staða síðustu vikur. Meðal annars hafa þessir flottu Lamborghini Murchielago sést, einnig herbílar, skriðdrekar og fleira.
Tökum á hasarkvikmyndinni Fast 8 er lokið á Mývatni og er tökuliðið að færa sig yfir til Akraness þar sem framleiðslan mun fara fram næstu vikur.

Alls voru áttatíu tryllitæki flutt hingað til lands í tengslum við kvikmyndina en hægt verður að sjá nokkra af þeim svakalegustu sem notaðir eru við tökurnar fyrir utan Korputorg milli klukkan 12 og 14 í dag.

James Phillips, framkvæmdastjóri framleiðslufyrirtækisins FF8, segist í samtali við Vísi hafa fundið fyrir miklum áhuga landsmanna á bílunum og að svona bílasýningar séu hluti af framleiðsluferli Fast and the Furious myndanna.

Sjá einnig:Leikstjóri Fast 8 birtir myndir af tökustað

Tveir Subaru WRX, Rally fighter, Caddy, RAM og líklega breyttur Dodge Charger.Mynd/Pétur Elvar Sigurðsson
„Við erum búin að ferðast með þennan kvikmyndabálk út um allan heim og hvarvetna mætir okkur velvild heimamanna. Við höfum því stundað það að leyfa áhugafólki um bíla og fagurkerum um fallega bílahönnun að skoða gripina. Stundum hafa áhugamenn komið með góða punkta um breytingar á bílunum sem hafa síðan ratað í myndirnar. Bifreiðavirkjarnir okkar verða þarna á svæðinu og þeir vilja ólmir spjalla um hin ýmsu smáatriði. Ástríðufólk um bíla getur látið gamminn geysa. Það er ég sko búin að læra síðustu ár,“ segir Philips og hlær.

Hann segir að fólk á Íslandi sé óvenju áhugasamt um bílana og fjölmargir hafa verið að koma og reyna að mynda á tökustað. Hann vill ekki gefa upp hvaða bílar verða á staðnum í dag en lofar augnakonfekti. Seinnipartinn munu flutningabílar síðan flytja sýningabílana upp á Skaga þar sem tökur munu brátt hefjast.

Sjá einnig: Fast 8 verður tekin upp á Akranesi

Tökurnar á Akranesi fara meðal annars fram við gömlu sementsverksmiðjuna í hjarta bæjarins. Vin Diesel er aðalstjarna myndarinnar en hann mætir ekki í tökur hér á landi.
Allt að hundrað manns koma að kvikmyndatökunum sem hófust í síðasta mánuði. Fast and the Furious myndaflokkurinn er einn sá stærsti sem nú er í gangi í heiminum en milljarða hagnaður hefur verið af myndunum.

Síðasta myndin í flokknum, sem heitir Furious 7, er sjötta tekjuhæsta mynd allra tíma með tekjur upp á 1.515 milljónir dollara, jafnvirði 202 milljarða íslenskra króna, í miðasölu. 

Sjá einnig:Vin Diesel-bollur til sölu á Skaganum

Hér fyrir neðan má sjá myndskeið sem tekið var upp á Mývatni fyrr í þessum mánuði.

Hefur þú náð myndum af tryllitækjunum úr Fast 8 á leið um landið? Sendu okkur þá endilega línu á ritstjorn@visir.is.



Uppfært 2. apríl: Þessi frétt var aprílgabb Vísis.



Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×