Kvikmyndastjarna rúin inn að skinni Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 19. mars 2016 10:00 Svavar Ingvarsson, þjálfari í Hreyfingu heilsulind í Glæsibæ, er frá Halldórsstöðum í Bárðardal eins og stórstjarnan Viður. Svavar rúði stjörnuna inn að skinni á dögunum. mynd/Sigmar Ernir Sigrúnar Ketilsson
Svavar Ingvarsson stóð í ströngu á dögunum þegar hann rúði hrútinn Við. Viður er enginn venjulegur hrútur en hann fór með eitt aðalhlutverkanna í Hrútum sem rakað hefur til sín verðlaunum. „Hann hagaði sér mjög vel og var pollrólegur í gegnum þetta, eins og sönn stjarna, ekki vottur af prímadonnustælum,“ segir Svavar Ingvarsson, bóndasonur frá Halldórsstöðum í Bárðardal, en á dögunum rúði hann einn aðalleikara verðlaunamyndarinnar Hrúta inn að skinni. Stjarnan sem um ræðir fór með hlutverk verðlaunahrútsins Garps í myndinni og heitir réttu nafni Viður. Kvikmyndin Hrútar var tekin upp í Bárðardal og hefur rakað til sín verðlaunum víða um heim frá því hún var frumsýnd síðastliðið vor, sópaði meðal annars til sín 11 verðlaunum á Eddunni nú í febrúar. Það hlýtur því að hafa þurft að beita klippunum sérstaklega vel á Við.Viður í hlutverki sínu sem verðlaunahrúturinn Garpur í kvikmyndinni Hrútar. Myndin var frumsýnd síðastliðið vor og hefur sópað til sín verðlaunum um allan heim, meðal annars ellefu verðlaunum á Eddunni.Mynd/Hrútar„Tómas Vilberg Valdimarsson, frændi minn, var reyndar aðalrúningsmaðurinn. Ég var að ná í kindurnar og leggja þær fyrir hann en fékk að rýja stórstjörnuna og láta smella af mér mynd. Ég er reyndar ekki vanur rúningsmaður og alls ekki nógu góður. Tómas fór því aðeins yfir þetta hjá mér svo stjarnan liti nógu vel út á eftir,“ segir hann sposkur. Þeir félagar rúðu þrjú hundruð kindur þennan dag og slógu ekki slöku við. Svavar er íþróttafræðingur og einkaþjálfari og hefur staðið á verðlaunapalli í frjálsum íþróttum og vaxtarrækt. Hann segir þetta þó hafa tekið hressilega á. „Tómas er þaulvanur og svo eldsnöggur að rýja að ég varð að hafa mig allan við, ná í kindurnar, draga þær til hans og leggja þær á rassinn. Afköstin fara eftir því hve lagningamaðurinn er röskur en rúningsmaðurinn er ekki meira en 35-40 sekúndur með hverja. Þetta var auðvitað heilmikill hamagangur og ég fann vel fyrir þessu í skrokknum daginn eftir. Við vorum að frá níu um morguninn til átta um kvöldið, með tveimur góðum matarhléum. Ég kófsvitnaði við þetta,“ segir Svavar. Mælirðu með þessu sem líkamsrækt? „Já, já, ef fólk kann að beita sér rétt. Það þarf að hafa bakið beint og nota fæturna, það er ekki hægt að grípa 300 rollur á einum degi, bara einhvern veginn, maður yrði fljótur að slíta eitthvað ef ekki er farið rétt að. Þetta er mikil líkamleg vinna og kemur ekkert á óvart að margir bændur eru slitnir í skrokknum af áratuga átökum,“ segir Svavar.
Mest lesið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Lífið Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Lífið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Menning Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Lífið Fleiri fréttir Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Sjá meira