Litríkt og forvitnilegt í Læknaminjasafni Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 19. mars 2016 14:00 Bleiki liturinn er tilvísun í æskuna en í nýrri línu leitar Magnea í grunninn. Visir/Vilhelm
Flóð er samsýning einstaklinga, hönnuða og listamanna í Læknaminjasafninu á Seltjarnarnesi sem stendur yfir í Hönnunarmars. Í ár leituðu félagar úr Textílfélaginu eftir samstarfi við hönnuði og listamenn úr öðrum nýskapandi greinum og það er áhugaverð og litrík blanda bíður sýningargesta. Magnea Einarsdóttir fatahönnuður sem sýndi nýja línu sína í síðustu viku á Hönnunarmars stekkur óvænt inn í samsýninguna. Magnea er stofnandi íslenska fatamerkisins MAGNEA og er útskrifuð úr fatahönnun frá Central St. Martins í London. Hún hefur getið sér gott orð bæði hérlendis og erlendis fyrir hönnun sína. Erlendir gestir samsýningarinnar eru farnir af landi brott og Magneu boðið inn í hana í staðinn. Hún er ánægð með hvernig tekist hefur til. Litríkar ullarflíkurnar standa á gínum í hráu rými Læknaminjasafnsins. Flíkurnar eru í takt við fyrri verk hönnuðarins, þar sem lögð hefur verið áhersla á prjón og nýja nálgun á íslenska ull. „Ég frumsýndi línuna um síðustu helgi. Ég er enn að vinna mikið með íslenska ull. Ég blanda henni saman við aðra tegund ullar, til að mynda merínóull. Þá nota ég fíngerð silkiefni sem ég sauma ullina í. Nýja línan er tilvísun í það sem ég var að gera þegar ég byrjaði. Ég er að leita aftur í grunninn.“ Magnea segir áskorun að vinna með íslenska ull. „Það er ástæðan fyrir því að ég vinn með hana. Áskoranir knýja mann áfram. Ég vil að mínar flíkur innihaldi flíkur sem eru úr íslensku hráefni og framleiddar á Íslandi. En ekki eingöngu, ég bind mig ekki við það.“ Litir nýju línunnar minna á haustið. „Ég veit ekki hvort það var tilviljun en það var haust þegar ég var að keyra norður í vinnuferð þegar ég var að vinna að línunni og ég tók mikið af ljósmyndum á leiðinni. Í línunni eru litir sem minna á haustið, vínrauður og gulur til að mynda. Svo langaði mig að vinna með bleika litinn, það er minn gamli uppáhaldslitur og tenging við æskuna.“ Gestir munu hafa margt fleira áhugavert að sjá á sýningunni Flóð. Í kjallaranum er forvitnilegt gróðurhús sem listamaðurinn Brynja Guðmundsdóttir á heiðurinn af og gaman er að þræða sig í gegnum. Þá hefur listamaðurinn María Sjöfn Dupuis Davíðsdóttir gert innsetningu sem fjallar um hlýnun jarðar. Lampar varpa mynd á gólfið með teikningum af jöklum og sýna bráðnun þeirra. Greinin/fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 19. mars.
Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist „Götustelpan“ glöð Lífið „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf „Þetta eru allt krakkar í íþróttum“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“