Gæddi sér á lambaskönkum í galtómum veitingasal IKEA Jakob Bjarnar skrifar 22. febrúar 2016 15:36 Aldrei þessu vant var enginn í veitingasal IKEA -- nema Guðbergur Bergsson.
Vísi hefur tekist að finna einn Íslending sem ekki var límdur við skjáinn þegar Ófærð var á dagskrá í gærkvöldi. Sá er Guðbergur Bergsson rithöfundur. Hann notaði tækifærið og gæddi sér á grilluðum lambaskönkum í IKEA meðan Ófærð var á skjánum. Þar var varla sálu að finna utan rithöfundarins góða og starfsfólks. Greint er frá þessu á Facbooksíðunni Guðbergur Bergsson – Guðbergsstofa. Guðbergur er margverðlaunaður rithöfundur, hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsöguna Svaninn árið 1991 og fyrir skáldævisöguna Faðir og móðir og dulmagn bernskunnar árið 1997. Guðbergur hlaut Norræn verðlaun sænsku bókmenntaakademíunnar árið 2004. Guðbergur fékk Riddarakross Afreksorðunnar frá Spánarkonungi. En, hann er jafnframt umdeildur pistlahöfundur á DV og á það til að strjúka þjóðarsálinni öfugt með blátt áfram hugleiðingum sínum. Guðbergur notaði sem sagt tækifærið, meðan þjóðin sat límd við skjáinn í gærkvöldi, stakk sér inná IKEA, veitingasalinn þar sem oftast er troðinn og fékk sér að borða. Eða eins og segir: „Grillaðir lambaskankar á draumaveitingastaðnum, sem var mannlaus sökum „Ófærðar““.
Mest lesið Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Lífið Frægir fundu ástina 2025 Lífið „Við erum öll dauð hvort sem er“ Lífið „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar Lífið Útgefandi Walliams lætur hann róa Lífið 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Lífið Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Lífið Fleiri fréttir „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni „Við erum öll dauð hvort sem er“ Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Sjá meira