Apaköttur apaspil Frosti Logason skrifar 25. febrúar 2016 07:00 Ég lenti í rökræðum um daginn við mann sem vildi halda því fram að þróunarkenning Darwins væri einhver farsælasta vísindakenning allra tíma. Kenning sem í raun heldur því fram að við mennirnir séum apar. Eftir stutt andvarp þar sem ég brosti örlítið í kampinn og hristi hausinn, benti ég honum á að óþarfi væri að missa sig í gleðinni, þróunarkenningin væri jú einungis kenning, hún hefði nú ekki sannað eitt né neitt enn þá. Það var verulega klókt af mér. Maðurinn varð stórundarlegur á svip og þóttist hafa heyrt þetta hundrað sinnum áður. Samt nægði þetta ekki til þess að hann sæi ljósið. Hann virtist algerlega blindaður af trúleysi sínu og hatri gagnvart skaparanum. Hatri á sannleika ritningarinnar. Ég benti honum á að hvergi væri hægt að sjá þessa þróun í verki þrátt fyrir ákafar tilraunir manna til þess. Enn hefði enginn séð ísbirni í dýragarði verða dekkri né hvíta menn í Afríku verða að blökkumönnum. Samt sem áður hafa þeir verið til dæmis í Suður-Afríku talsvert lengi. Hvernig útskýrið þið það? Að lokum skellti ég framan í hann staðreyndinni að þrátt fyrir þá glórulausu tilgátu Darwins að simpansar og jafnvel górillur væru náskyldar manninum hefði engin þeirra enn þá fundið upp á því að búa til hjólbörur eða skóflur. Hvernig stendur á því spurði ég og af hverju hafa þessir blessuðu frændur okkar ekki enn tekið upp á því að ganga uppréttir. Ef við höfum þróast svona rosalega, hvers vegna hafa aparnir þá ekki gert það líka? Eftir þetta rökfræðilega rothögg mitt dró viðkomandi sig alfarið út úr samræðunum. Þá hugsaði ég með mér. Ha, ha, ég með apaheila. Líklegt. Ég er vitsmunalega hannað meistarastykki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Frosti Logason Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun