Endurreisn töfralækninga Frosti Logason skrifar 11. febrúar 2016 07:00 Lengi vel lifði ég í miklum misskilningi um óhefðbundnar lækningar. Mér hafði verið kennt með gagnrýnni hugsun að slíkar aðferðir gætu einungis flokkast í tvo flokka. Þeir væru annars vegar aðferðir sem enn væri ekki búið að rannsaka og því væri ekkert vitað um raunverulega virkni þeirra. Svo hins vegar aðferðir sem búið væri að rannsaka og niðurstöður þeirra rannsókna hefðu verið að aðferðin virkaði yfirhöfuð ekki. En svo fór ég í nokkra jógatíma, skipti alfarið yfir í lífrænt hráfæði og byrjaði að stunda svett í sveitinni. Þá komst ég að því að ég vissi í raun ekki neitt og að sömu sögu væri að segja um vestræna vísindamenn og lækna. Læknavísindin sem ég taldi hafa lengt meðalaldur okkar um áratugi voru bara húmbúkk. Þvílíkt frelsi. Nú vissi ég að langt og strembið háskólanám var óþarft. Ég gat lært allt á YouTube. Í fór nefnilega á áhugaverðan fund um andleg málefni í þessari viku. Þar talaði bandarískur töfralæknir um nýjar nálganir í heilbrigðismálum og sína eigin reynslu af því að heila hina sjúku. Heilarar eru nútíma seiðkarlar sem geta læknað líkamlega kvilla fólks einungis með hugarafli og smá aðstoð frá englum og öndum liðinnar tíðar. Samkvæmt töfralækninum eiga öll vandamál okkar sína eigin rödd. Seiðskrattinn heilar með því að tala við tiltekin vandamál hjá fólki. Aðferðin flokkast vissulega undir óhefðbundnar lækningar, en þær eru í mörgum tilfellum ljósárum á undan hinum vestrænu læknavísindum. Töfralækningar eru framtíðin og ég skil ekki hvers vegna við dúndrum ekki einhverjum prósentum af vergri landsframleiðslu í þetta. Hvað segirðu um það Kári? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Frosti Logason Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun