Skemmtun fyrir alla fjölskylduna Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 16. janúar 2016 10:00 Snjór um víða veröld eða World Snow Day verður haldinn hátíðlegur á morun. Vísir/AntonBrink „
Tilgangurinn með viðburði sem þessum er að skíðasvæði um allan heim sameinist um að fá byrjendur til að mæta ásamt fjölskyldum þeirra í fjallið, til þess að njóta og upplifa þess sem fjöllin hafa upp á að bjóða,“ segir Jón Viðar Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Skíðasambands Íslands. Snjór um víða veröld eða World Snow Day er alþjóðlegur skíðadagur sem haldinn er víðsvegar um allan heim á morgun. „Við erum aðallega að reyna að höfða til barna, á aldrinum 4-14 ára. Skíðasamband Íslands vill búa til heimsviðburð um snjó og kynna öryggisreglur fyrir börnum. Þetta er í fimmta sinn sem dagurinn er haldinn hátíðlegur víðsvegar um heiminn, og jafnframt fimmta sinn sem að Ísland tekur þátt í viðburðinum,“ segir Jón Viðar ánægður með þátttöku íslands. Níu skíðasvæði víðsvegar um landið bjóða upp á alls konar afþreyingu og fríðindi fyrir þá sem mæta þann 17. janúar. „Helsta ástæðan fyrir því að farið var af stað með World Snow Day var að fá fleiri til þess að iðka skíði en sú tala fór lækkandi frá aldamótum fram til 2010. Fyrir utan að kynna skíðaíþróttina fyrir alheiminum með svona viðburði eins og World Snow Day er verið að reyna að fá börn, og aðra, til þess að njóta útivistar í óspilltri náttúru og sjá hag sinn í að huga að heilsunni með hollri hreyfingu,“ segir Jón Viðar fullur tilhlökkunar fyrir komandi helgi. Þau skíðasvæði sem taka þátt í ár eru Bláfjöll Reykjavík, Hlíðarfjall Akureyri, Ólafsfjörður, Dalvík, Siglufjörður, Tindastóll Sauðárkrókur, Oddskarð, Stafdalur og Ísafjörður og verða öll þessi svæði með skemmtilega dagskrá.
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd Bíó og sjónvarp Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Útför Björgvins opin almenningi Lífið Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira