Börn fæðast fordómalaus: Sjö prósent þjóðarinnar með erlent ríkisfang Stefán Árni Pálsson skrifar 7. janúar 2016 14:30 Ótrúleg flott stuttmynd. vísir
Innflytjendaráð í samstarfi við velferðarráðuneytið hefur hleypt af stokkunum átaksverkefninu „Við fæðumst fordómalaus - hvað svo?“. Verkefninu er ætlað að skapa umræðu um þá fordóma. Það er nokkuð ljóst að fullorðið fólk getur lært heilan helling af börnum. Innflytjendaráð fékk auglýsingastofuna Árnasyni, í samstarfi við framleiðslufyrirtækið Tjarnargötuna og Ævar Vísindamann, til að taka stutt viðtöl við nokkur íslensk börn og biðja þau um að svara örfáum spurningum tengdum fordómum. Börnin sýndu fádæma fordómaleysi þegar þau svöruðu vandalaust spurningum eins og „veist þú hvað innflytjendur eru?“ sem eitt barnið svaraði svo fallega: „Ég held það sé vinátta.“ Á Íslandi búa 24.300 einstaklingar með erlent ríkisfang, sem er 7,4% þjóðarinnar. Fólk kemur hingað af margvíslegum og mismunandi ástæðum, t.d. einstaklingar og fjölskyldur sem koma hingað í leit að nýjum tækifærum, ævintýraþrá er hvati einhverra og eins kemur hér fólk sem þurft hefur að flýja heimkynni sín. Þetta er fólk með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu, menntun og þekkingu og auðgar samfélagið á margvíslegan máta. Þá má geta þess að opið er fyrir umsóknir í þróunarsjóð innflytjendamála og eru áherslur sjóðsins að þessu sinni tengd átaksverkefninu, á verkefni og rannsóknir sem beina kastljósinu að mannauðnum sem býr í innflytjendum og þeim styrk sem innflytjendur færa íslensku samfélagi, auk rannsóknar- og þróunarverkefna sem stuðla að virkri þátttöku innflytjenda í samfélaginu og auka sýnileika þeirra.Hér að neðan má sjá þessa frábæru stuttmynd sem allir geta lært svo mikið af.
Mest lesið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Menning Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið Valin versti ljósmyndari heims Lífið Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Fleiri fréttir „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Sjá meira