Öllu tjaldað til hjá Stórsveitinni Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 2. janúar 2016 10:00 Páll og Andrea syngja með stórsveitinni en Sigurður er hljómsveitarstjórinn. Vísir/Stefán „
Við vorum að æfa í dag og það gekk alveg stórvel, enda meistarar í hverju horni hjá Stórsveit Reykjavíkur,“ segir Andrea Gylfadóttir söngkona. Hún verður gestasöngvari á tónleikunum Gullöld sveiflunnar í Silfurbergi í Hörpu á morgun, sunnudag, ásamt Páli Rósinkrans, þar sem Stórsveit Reykjavíkur fagnar nýja árinu með því að flytja lög í frumgerð þeirra frá árunum 1930 til 1945. Þetta er í fjórða sinn sem stórsveitin heldur tónleika um áramót sem hún helgar þeim eina og hálfa áratug á síðustu öld sem sveiflan var í algleymingi, því má segja að þeir séu orðnir að árvissum viðburði. „Það voru margir snillingar í tónlistinni á þessum tíma, milli 1930 og 1945,“ segir Andrea og nefnir Benny Goodman, Artie Shaw, Jimmy Lunceford, Cab Calloway, Charlie Barnet, Les Brown, Glenn Miller, Duke Ellington og Count Basie meðal þeirra eftirminnilegustu. Sjálft kveðst hún oft hafa sungið með stórsveitinni gegnum tíðina, bæði nýtt og gamalt efni og alltaf haft gaman af. „Þetta verða galatónleikar,“ segir hún. „Mér var úthlutað lögum sem stjórnendur bigbanda á þessu magnaða swing-tímabili útsettu fyrir söngkonur. Andrea segir söngvarana ekki í aðalhlutverkum á tónleikunum, heldur eins og hljóðfæri með part af lögunum. „Bigböndin voru svo big,“ útskýrir hún og tekur fram að tónleikarnir hefjist klukkan 17 í Silfurbergi og stjórnandi þeirra og kynnir sé Sigurður Flosason.
Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist „Þetta eru allt krakkar í íþróttum“ Lífið samstarf Fundu ástina á Domino's Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“