Með nikkuna frá sjö ára aldri Elín Albertsdóttir skrifar 5. mars 2016 09:00 Margrét Arnardóttir harmóníkuleikari stendur í ströngu þessa helgi. Meðal annars kemur hún fram á harmóníkutónleikum í Salnum í dag. MYND/ERNIR
Margrét Arnardóttir harmóníkuleikari kemur fram á tónleikum í Stúdentakjallaranum og Salnum í dag. Margrét var aðeins sjö ára þegar hún byrjaði að spila en hún hefur alla tíð heillast af nikkunni. Margrét segist upphaflega hafa smitast af föður sínum sem spilar á harmóníku. „Ætli ég hafi ekki erft áhugann,“ segir hún. „Annars er mjög vaxandi áhugi á harmóníkuleik hér á landi. Ég er til dæmis að kenna tólf ára gamalli dóttur vinkonu minnar,“ segir Margrét. „Sumir hafa fengið áhuga af því að einhver nákominn spilar á nikku en öðrum finnst þetta bara flott hljóðfæri. Það geta allir lært á nikku. Ég byrjaði ung í námi hjá Karli Jónatanssyni harmóníkuleikara sem er því miður fallinn frá. Hann gerði það eiginlega fyrir pabba að taka mig svona unga í námið, enda var nægur áhugi fyrir hendi og tímarnir þar gáfu mér heilmikið.“Margar konur spila Faðir Margrétar, Örn Arason, var formaður Harmonikufélags Reykjavíkur þegar hún var að alast upp. Hann spilaði á tónleikum og lék um tíma með hljómsveit Karls Jónatanssonar. „Ég á eldri systkini en þau erfðu ekki þennan sama nikkuáhuga,“ segir Margrét og bætir við að sér hafi strax þótt mjög gaman að spila. Hún segir að það hafi aukist mikið á undanförnum árum að konur spili á harmóníku en það var fátítt á árum áður. „Það eru mun fleiri konur en maður heldur að spila. Þær eru kannski minna sýnilegar en karlar en mér sýnist það allt vera að breytast.“Í bandinu hans Bubba Harmóníkufélög eru starfandi víða og þar hittist fólk með nikkuna, spjallar og spilar. „Það er mikill félagsskapur í þessari tegund tónlistar. Ég spilaði töluvert með pabba og konunni hans. Mér fannst það gaman á sínum tíma en núna hef ég meiri áhuga á annars konar tónlist og að nota nikkuna með öðrum hljóðfærum,“ segir Margrét sem ætlar að spila á Háskóladeginum í dag með Balkanbandinu RaKi sem varð til í FÍH. Hún spilar líka í litlum djasshópi, er í hljómsveitinni Sunnyside Road, kemur stundum fram með Prins Póló og er ein af Spaðadrottningunum hans Bubba. „Ég hélt tónleika með Brynhildi Guðjónsdóttur leikkonu fyrir jólin. Þar minntumst við Edith Piaf sem hefði orðið hundrað ára. Mér finnst mjög gaman að sýna fjölbreytileika nikkunnar og hvað hún passar vel við alls konar tónlist. Fólk á það til að setja alla harmóníkuleikara undir einn hatt en það eru auðvitað margir flokkar fyrir þetta hljóðfæri. Það er endalaust hægt að nýta nikkuna með alls konar tónlist,“ segir Margrét sem stundar nám í harmóníkuleik hjá FÍH. „Ég fór í þetta nám fyrir þremur árum til að þroska kunnáttuna. Ég valdi djass og klassík og finnst það æðislegt. Mér finnst líka skemmtilegt að læra fræðin á bak við hljóðfærin og breikka þar með vitundina í tónlistinni,“ útskýrir hún.Stjörnutónleikar Margrét verður ekki bara í Stúdentakjallaranum í dag því klukkan fimm hefjast tónleikarnir í Salnum þar sem allir bestu harmóníkuleikarar landsins koma fram. „Ég var beðin að spila á þessum tónleikum sem bera titilinn Stjörnutónleikar Sambands íslenskra harmonikuunnenda. Níu manns koma fram og meðal þeirra eru Reynir Jónasson og Bragi Hlíðberg sem flestir þekkja. Þarna verður góður hópur og ég er stolt af því að fá koma fram með þessum meisturum,“ segir Margrét. „Fyrir ári hélt sambandið heiðurstónleika fyrir Karl Jónatansson fyrir fullu húsi. Harmoóníkutónleikar eru mjög vel sóttir enda gaman að hlusta á þessu tegund tónlistar. Ég sjálf hef mikla ánægju af franskri- og balkantónlist sem er reyndar hröð og krefjandi. Mér finnst mjög skemmtilegt að spila með balkanbandinu, þetta er hress og hæfileikaríkur hópur.“Semur og syngur Margrét segist hafa haft nóg að gera. Hún sé í mörgum og margvíslegum verkefnum sem gerir henni kleift að lifa á tónlistinni. „Það er margt að gerast á næstunni. Ég er í stjórn Reykjavík Folk Festival sem verður 10.-12. mars á Kexi. Það verða mjög spennandi tónleikar en mér finnst líka ótrúlega gaman að vera í verkefnastjórn og vinna bak við tjöldin.“ Margrét semur líka lög og hefur lítillega sungið. „Mig langar að semja meira. Það er skemmtilegt að flytja eigin lög. Ég reyni alltaf að setja lögin í minn búning en það er öðruvísi að flytja það sem maður hefur sjálfur samið, það er ákveðin opinberun,“ segir hún.
Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Fleiri fréttir Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Sjá meira