Ostborgarasúpan gerði allt vitlaust upp í HÍ: „Það var algjör örtröð í Hámu“ Stefán Árni Pálsson skrifar 21. janúar 2016 14:30 Eydís var að fíla þessa súpu. vísir „
Þetta var áhugaverð súpa, það er á hreinu,“ segir Eydís P. Blöndal, heimsspekinemi við Háskóla Íslands, um sérstaka súpu sem var í boði í Hámu í HÍ í dag. Háma er mötuneyti háskólans og var boðið upp á ostborgarasúpu í hádeginu. „Ég varð að sjálfsögðu að prófa súpuna, en mér fannst þetta aðallega fyndið. Það sem mér fannst skemmtilegast við þetta er að ég held að þau í Hámu séu búin að átta sig á krafti samfélagsmiðla og þetta hafi bara verið einhver tilraun hjá þeim, því það varð allt vitlaust upp í skóla. Ég hef aldrei séð svona mikið af fólki í Hámu.“Mikil umræða hefur skapast um súpuna á Twitter eins og sjá má hér að neðan. „Ég vil trúa því að þetta hafi verið markaðsfræðileg tilraun hjá Hámu, því það voru gjörsamlega allir mættir í hádeginu til að kíkja á súpuna. Þetta minnti svolítið á Almar í kassanum,“ segir Eydís sem er um þessar mundir að bjóða sig fram í Stúdentaráð og er hún í 1. sæti á lista Röskvu á hugvísindasviði. „Það var algjör örtröð í Hámu í hádeginu. Ég myndi samt sem áður segja að súpan hafi ekki alveg bragðast eins og ostborgari. Meira svona eins og kjötsúpa, en hún var samt sem áður góð á bragðið. Ég hélt að þetta yrði nú bara venjulegur fimmtudagur en svo reyndist heldur betur ekki.“#ostborgarasúpan pic.twitter.com/AGSYna26Qi— Eydís Blöndal (@eydisblondal) January 21, 2016 Tweets about Ostborgarasúpa
Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Craig hafi átt hugmyndina að því að drepa hana Bíó og sjónvarp „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Janosch er allur Menning Alsæla á Akranesi Tónlist „Götustelpan“ glöð Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ „Götustelpan“ glöð Hryllingur og hiti á klúbbnum Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“